Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.11.1929, Blaðsíða 3
MANAÐARBLAÐ
KFUM
R EYK J AVÍ K
Nóv. 1929
Guð: hinn mikli veruJegleiki —
(Úr Bænavikuskránni).
.Tes. 6, 1—5.
Þegar Guð opinberaðist hinum heilögu og'
spámönnum sínum, fyllti nærvera hans þá
með ósegjanlegri og lotningarfullri ógn, því
að þeir fundu óverðugleika sinn. Hið alskæra
ljós heilagleika og óbærilegrar fegurðar og
fullkomleika varð mannlegu eðli um megn að
þola. „Þú getur ekki sjeð auglit mitt; sagði
Guð við Mose, „engin maður getur sjeð aug-
ht mitt og lifað (2. Mós. 23, 18). Sjálfir engl-
arnir í sýn Jesajasar huldu ásjónur sínar
með vængjunum. Yfir spámanninn kom eins
og „eyðandi eldur“ og flemtur gagntók hann
í þessari dýrðar opinberun; hvað var annað
fyrir mann að gjöra en að þeyta frá sjer
þeim afguðum, er hann hafði dýrkað áður
en hann komst að raun um veruleika Guðs,
og reyna til að fela sig í klettagjám og
hamraskorum — einhversstaðar til að kom-
ast undan ógnum Drottins og ljóma hátignar
lians. En þar næst fylltist hugur hins heilaga
spámantis með óendanlegum vísdómi. Og'
með honum titrar nýr strengur: hin ótrúan-
lega þolinmæði og miskunn hins eilífa Guðs,
sem finnur leiðir og ráð til að auðsýna sína
frelsandi náð og meðaumkun. Til þess að til-
biðja þenna Guð, sem er hinn einasti herra
og Drottinn allra“, hann, sem heitir kær-
leikurinn, kallar Jesús á menn og laðar þá,
þar til óttinn hverfur og verður að til-
beiðslu, sem ekkert dregur undan, en gefur
allt.
Bæn: Ó, þú, sem ert ljós þess anda, sem
þekkir þig, líf þeirrar sálar, sem elskar þig,
kraptur þess hjarta, sem þjónar þjer, hjálp-
aðu oss til að þekkja þig, svo að vjer get-
um í sannleika elskað þig,að elska þig svo
að vjer getum í öllu þjónað þjer, því í því
er allt frelsi fólgið. 1 Jesú nafni. Amen.
----o----
Frá fjelaginu.
Kveðjufundur var haldinn í A-D fimmtud.
24. Octob. — Var þá sumarið kvatt með því,
að 6 fjelagar gjörðu grein fyrir sumarstarf-
inu og var þeim hverjum gefinn 10 mínútna
tími til máls. Sjera Bjarni Jónss'm, formað-
urfjelagsins stjórnaði fundinum vel og rösk-
lega.
Fyrst talaði Jón Oddgeir Jónssnn og sagði
frá Væringjastarfi sumarsins.
Þar næst talaði Guðmundur Bjarnason og
skýrði frá starfseminni inni á ræktunar-
landi voru.
Þá talaði Guðmundur Ólafsson um haust-
markað vorn og undirbúninginn undir hann.
Svo talaði Jón Sigurðsson um knatt-
spyrnustarfsemina í ,Val“ í sumar.
Þar á eptir talaði Jóel Ingvarsson um
starfið í Kaldárseli og gaf yfirlit yfir það.