Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Síða 6

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Síða 6
4 MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. hinu vitra skáldi orð og alla þessa hnignun og úrkynjun kveður hann eiga rót sína í því að menn hættu að tigna guðina og tóku að vanrækja helgihöldin, og fóru í vantrú að halda að þeir væru sjálfum sjer nógir..— Og hafi vantrú í heiðni haft svo skaðlegar afleið- ingar, hversu miklu þyngri á metunum mun þá vera vantrú og vanræksla vor, sem höf- um hina fullkomnu opinberun hins sanna, lif- anda Guðs í syni hans Jesú Kristi. Mjer finnst að þetta kvæði sje alvarleg ádeila til vor og aldar vorrar. Sú er öld nú að menn vilja í engu vera upp á Guð komnir og fyrir- líta hann og opinberun hans. Menn hreykj- ast upp í oflæti sínu og finna upp hver undrin á fætur öðrum í alls konar stórvirkjum og stór- merkjum, sem menn áður á tímum dreymdi ekki; framfarirnar eflast og enginn fær fyrir- sjeð endimark þeirra, en með öllu þessu standa menn í meiri vandræðum nú en nokkru sinni áður. Þótt samgöngur á sjó og landi og í lopti sjeu svo góðar, að stuttur tími gangi til þess að ná heimsálfanna milli, ríkir samt óviðráðanleg neyð í heiminum víð- ast hvar; sumstaðar deyja menn úr hungri, sumstaðar úr offylli og' ofnautnum. 1 staðinn fyrir að nota hinar miklu uppgötvanir til g'óðs og velferðar, hamast menn við að finna upp meira og meira af drápsvopnum, eitur- gasi og svo drepandi efnum að jafnvel svarti dauði bliknar í sambandi við þá eyðilegg- ingu, sem nýju drápsvjelarnar eiga að fram- leiða. f undirdjúpi mannkynsins sýður og' ólgar hatrið í stað kærleikans, hatur þjóða milli, milli stjetta og einstakra manna. Menn segja: Friður, friður! engin hætta, en »styrj- cldin sefur á svæfli úr glóð við brennisteins- voganna vellandi flóð,« og enginn veit, hve lengi hún sefur; hún getur vaknað hvenær sem vera skal, ef ekki í ár, þá ef til vill 1936, og engin friðarþing og' afvopnunar ráðstefnur fá haldið henni í skefjum. Riddarinn á bleika hestinum, sem Jóhannes sá í sýninni, hann sem heitir Dauði og hefur Helju í för með sjer, hann ríður fram og hefur vald til þess að láta menn deyja fyrir sverði, hungri og drepsótt og láta menn farast fyrir ótömdum : I t t öflum veraldarinnar. — Sannarlega er dauð- inn á ferð. Og ekki eru máttarminni áhrif hins andlega dauða. Merki þess dauða sjást allstaðar: Á heimilum í losi hjónabands og barnauppeldis, í spillingarbrjálsemi ofnautn- anna, óreglu og taumleysi ungra manna, sið- leysi og flennuskap ungra daðurdrósa, j taumleysi ósiðlegra dansa, \ vaxandi óráð,- vendni og glæpum. Þannig sjást allsstaðar merki hins andlega darða; og hinn eilífi dfiucj: með eilífri glötun sogar til sín alla hringið- una inn í sitt huhgraða heljar gin. — En öll þessi eymd, allt þetta böl stafar frá þeirri banvanu uppsprettu, að menn falla frá Guði og lávarði lífs og friðar, Jesú Krist;, og útskúfa honum, ;:em einn hefur vald til þess að gefa líf. Því e;ns og faðirinn upp- vekur dauða og lífgar þá, þannig lífgar og' sonurinn þá, sem hann vill, Og' smur'nn ei- lífi gengur um kring og starf'ar allt iil þessa að lífgjafarverki sínu, og hver sem tekur á móti honum, fær eilíft líf, fær frið og krapt frá hæðum. Sonurinn eilífi, sem mennirnir útskúfuðu og mennirnir útskúfa nú í ofstopa og heimsku sinni, hann gengur um kring enn þá í óendanlegri meðaumkun og sampíningu með hinum villuráfandi börnum veraldarinn- ar. Hann starfar eins og Guð, faðir hans, starfar að því að sönn friðaröld megi upp- renna. Hann starfar á móti öflum dauðans og eyðileggingarinnar. Og þegar straumuv syndar og dauða hafa náð hámarki sínu, þeg- ar hans tími kemur. þegar s.vndin, dauöinn og djöfullinn hafa sýnt getuleysi sitt í eyði- leggingarverki sínu, þegar hinn hrokafulli mannsvilji er orðinn vanmegna og ráðþrota, svo að berlega hefur komið í ljós, að hann með öllum uppfindingum sínum og framför- um getur ekki ráðið bót á mannkynsbölinu, þá kemur hann, Drottinn allsherjar, fram í almætti sínu og' kollvarpar öflum dauðans og gefur líf. Hann starfar allt til þessa og' hann gefur þeim, sem vilja fylgja honum, þeim sem ganga honum á hönd, þeim sem trúa á hann sem guössoninn og frelsarann, hann gefur þeim líf og þeir starfa einnig allt til þessa. Starf hans í þeim ber sinn ávöxt og

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.