Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Page 10

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Page 10
8 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. þeir fallega skcgarsöngva og önnur lög bæði saman á fiðlu, cello og píanó, og síðan feng- um vjer bæði cello- og fiðlusóló með und r- spili hvorttveggja. Var hljóðfæraleik þeirra mjög vel tekið af eldri og yngri. Að því loknu var oss borið kaffi og menn fóru að riæra sig á ný. Því næst veitti sjera Friðrik, t'yrir hönd Skógarmannastjórnarinnar, fimm urig- um Skógarmönnum verðlaun fyrir áhuga cg góða fundarsókn á fyrra ári. Verðlaunin voru Biblían og Undirbúningsárin eftir sjera Fr. Fr. Tveir af þessum drengjum voru því mið- ur ekki viðstaddir, því annar þeirra lá veik- ur heima, en hinn var úti á sjó. Því næst flutti sjera Friðrik ræðu fyrir minni sjera Einars Thorlaciusar og skcgræktarstjórans, lýsti hann fyrir viðstöddum þeirri vináttu og hjálpsemi, sem þeir hvor um sig hefðu sýnt Skógarmönnum fyrr og síðar, og ekki sízt í byrjunarerfiðleikum Skógarmanna meðan þeir fyrst voru að heimsækja Lindarrjóður, annað hvort fótgangandi eða með slæmum farartækjum. Og þá var ekkert húsaskjól í Lindarrjcðri að finna, nema tjöld þau, sem menn komu með með sjer. Hann lýsti því að Skógarmenn ættu því að þakka, hvað þeir væru nú, að þeir hefðu nótið vináttu og hjálp- semi góðra vina meðan erfiðleikarnir voru mestir, og það hefði skapað þeim bjartar framtíðarvonir og hugrekki til starfa. — Þeg- ar hann hafði lokið máli sínu, tók skógrækt- arstjóri til máls og lýsti mörgum þeim erfið- leikum, sem skógræktarmál Islands hefði átt við að búa, þakkaði hann fyrir góðar viðtök- ur Skógarmanna og lýsti gleði sinni yfir því, að þeir ættu heimili á jafn fallegum stað og Vatnaskógur væri. Þá talaði sjera Einar Thorlacius, þakkaði hann sjera Friðrik fyrir ræðu hans og Skógarmönnum fyrir blessun- arríkt og gleðilegt kvöld, hann minntist þeirra skemmtilegu tíma á sumrin meðan hann var í Saurbæ, þegar hinir ungu og fjörugu dreng- ir hefðu komið til kirkju og sungið þar sálm- ana fullum hálsi. Kvað hann það hafa verið upplífgandi og skemmtilegt að tala yfir slík- um kirkjugestum. Þakkaði hann þeim fyrir margar góðar samverustundir fyrr og síðar. Þá talaði fyrv. borgarstjóri Knud Zimsen. Þakkaði hann fyrir boðið og hina ánægjulegu kvöldstuncl, sem honum hefð’ auðnast að tiga með Skógarmönnum. Hann talaði um hið þýð- ingarmikla starf, sem Skógarmenn rækju í Vatnaskógi og hver áhrif það myndi geta haft á framtíð þeirra drengja, sem þar kæmu, og þá um leið framtíð Reykjavíkur og æsku hennar. Hann talaði mörg hvatningarorð t il Skógarmanna og óskaði þeim gcðs geng'is í framtíðinni og' ríkulegs árangurs af starfi sínu. Þar sem nú var orðið nokkuð álið'ð kvölds, endaði sjera Bjarni Jcnsson, dóm- kirkjuprestur, hátíðina með guðscrði og bxn. Sg. Frá K. F. U. M. Akureyri. Eins og fjelagsmönnum hjer er kunnugt, starfai- K. F. U. M. á Akureyri undir stjórn J(jbs. Sigurðssonar, sem einnig veitir forstöðu starfsemi Kristnihoðsfjelaganna á Akureyri. Fjelagið starfar í tveim deildum á Ak- ureyri: A.-D. og U.-D. Fundir eru vel sóttir í báðum deildum, og er það gleðilegt; en gleði- legra er þó það, að þar er 1 lustað á guðsorö með eptirtekt og áhuga af ungum mönnum. Tveir fjelagsbræður vorir hjeðan úr Reykja- vík, þeir Viggó Jessen vjelstjóri og' Sigur- bergur Árnason kaupm. voru nýverið á fundi í K. F. U. M. á Akureyri, og láta mjög vel yfir því, sem þeir sáu og heyrðu þar. Almenn- ar samkomur hefur Jóhs. í »Zíon«, húsi kr’stniboðsfjelaganna, á hverju sunnudags- kvöldi og er þá venjulega húsfyllir. Barna- guðsþjónustur hefur hann hvern sunnudags- moi'gun, og' eru þ:cr svo vel sóttar að húsið rúmar vart cll þau börn, sem þangað koma. Aldrei eru þau færri en tvö hundruð, oft um þrjú og á fjórða hundrað börn, sem koma. Biblíulestur með sambæn hefir Jóhs. einu sinni í viku, þar sem koma stöðugt 35—50 manns. Annanhvern fimmtudag er samkoma í Glerárþorpi. Þangað fer alltaf dálítill flokk- ur með Jóhs., og eru þær samkomur prýðilega vel sóttar. Nú í maí næstk. er útrunninn tim- inn, sem Jóhs. er ráðinn hjá Kris'niboðsfje lögunum á Akureyri, og fjelög'in svo fátæk, að þau treysta sjer ekki að launa mann. Oss

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.