Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Blaðsíða 12

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1935, Blaðsíða 12
10 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. mann: Oxford-Gruppe-Bevegelsen i luthersk Belysning (kr. 2.50 n.). Eins og allt sem frá hans hendi kemur, er þessi bók ítarleg og áreiðanleg — og ættu allir, sem eru s;er meú- vitandi um sjergildi lútherskrar trúar, að lesa þetta rit. Valgeir Skagfjörð. --- Róið í land. Smásaga. Knútur gamli var einn af duglegustu fiski- mönnunum í öllu fiskiverinu. Það leit út fyrir, að það fylgdi honum alveg sjerstök heppni, þegar umi fiskiveiðar var að ræða. Það var í rauninni enginn, sem hafði neitt á móti því, að fá skiprúm hjá honum. Að minnsta kosti var það svo, að hver sá, sem var svo hepp- inn að fá skiprúm hjá Knúti, var viss um að ganga frá borði með góðan hlut, að vertíð lok- inni. Þannig hafði það að minnsta kosti verið að undanförnu. Það voru margir nýliðar, sem kepptust um að fá skiprúm hjá Knúti, vegna þess, hve mikill fiskimaður hann var. En að sumu leyti voru þeir samt hálf-leiðir yfir því að vera ráðnir hjá honum, þegar þeir komust að því, áð hann var »lesam.:i!) Það var alls ekki svo auðvelt að sitja inni, þegar Knútur tók Bibl- íuna og las langa kapítula í henni. Það var heldur engin skemmtun í því fólgin að sitja inni og syngja þessa löngu sálma, sem' hann stakk upp á við þá, að þeir skyldu syngja. Hversvegna gat hann ekki eins látið syngja stutta sálma. sem voru ekki nema tvö vers eða svo? Nýliðarnir gutu oft hornauga hver til annars, þegar Knútur tilkynnti, hvaða sálm ætti að syngja, og þeir skildu hver ann- an á svipnum, en enginn þorði að segja neitt. En verst af öllu var það þó, þegar Knútur, eptir lesturinn, kraup á knje, spennti gre;par *) Uppnefni í háðungarskyni á heittráaimönnum í Norefíi, einkum fylgjendum H. N. Haupe. og bað til Guðs. Æ, að sitja hér og hlusta á allt þetta. Knútur þakkaði Guði fyrir frelsið talaði v:'ð hann um þá þungu ábyrgð, sem hvíldi á sér — sem sé þá, að þessir ungu menn, sem hann hafði með sjer í bátnum, vteru ekki frelsaðir. — Já, þú veizt það, Guð, sagði hann stundum, - hverstt opt þetta hefur valdið mjer angistar og gert mig kvíðand', en veittu mét' náð til þess að koma þeim he’lu og höldnu í land aptur, já, hjálpaðu mjer til þess að sýna þeim leiðina inn í hina eilífu höfn. — Þá var eins og bekkirnir, sem þeir sátu á, væru heitir eða alsettir nálunv. Þegar Knútur hað svona, var eins og þeir fyndu á knjám sjer, að það ætti ekki við að sitja.' Hnjáliðirnir urðu svo máttvana, að þeim fannst það vera hið eina rjetta, að beygja knje sín. Bara að maður gæti komizt út, þá. En það var meira, sem Knútur hafði að tala við Guð um. Heimilin þeirra, hina fiskimennina já, um allt talaði hann við Guð, svo að það var næstum barnalegt. Þegar hann svo bað Guð um, ef það þóknaðist hon- um, að gefa þeim það, sem þeir þurftu með af jarðneskum gæðum, — að hann vildi gefa þeim fisk, ja, þá var eins og þeir gætu fylgst með í bæninni. Því höfðu þeir áhuga fyrir. Svo slæmt sem það var, að þurfa að hlusta á bænirnar, var það þó gott, að hann skyldi ekki gleyma þessu. Fólk, sem gekk fram hjá verbúðunum, gat oft heyrt sönginn, sem hljómaði út frá verbúð Knúts, og á kvöldin var .jafnvel hægt að heyra orð og orð af hin- um heitu bænum hans. Það var þess vegna ekki ósjaldan, að unglingar, sem höfðu að- setur sitt í verbúð Knúts, »lesarabúð« eins og þeir kölluðu hana, fengu framan í sig alls- konar háðsglósur um helgidagsandlit, bæna- samkomur og sálmasöng. Þá áttu surnir þeirra það til, að svara aftur með grófum orðum, að hún væri áreiðanlega ekki samkvæmt þeirra csk, öll þessi guðrækni. Friðþjófur bölvaði og sagðist ætla að reyna að fá bnn ’- inn enda á þetta, því að Lesara-Knútur mundi verða langbezti formaðurinn í öllu fiskiver- inu, bara ef hann hætti þessu bænastagli. En þegar þeir fóru að hugsa um það eptir

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.