Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1938, Qupperneq 14
36
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
Alþjóðabænavika
fjelag-a vorra er dagana 13.—19. nóvem-
ber að þessu sinni. Ihugunar- og bænarefnin
þá daga eru birt í þessu blaði. Auk þess. eru
þau prentuð sjerstaklega í litlu hefti, sem
útbýtt er ókeypis til þátttakenda í samkom-
unum, sem haldnar eru á hverju kvöldi vik-
unnar, eins og venja er til.
Ný drengjabók.
Prldtjov Blrkeli: It j ii r u í 1 u g -
iii » ð ii r . útg. Skógarmenn K. F.
U. M. Reykjavik 1938. 172 bls. Verö
kr. 4,50 i bandi.
Það er árlega gefinn út mikill fjöldi
drengjabóka, en ekki verður ávallt rneð jafn
miklum rjetti sagt:, að þær eigi allar brýnt
erindi til drengja. En hjer kemur þó innan-
um ein, ,sem hægt er að gefa hin beztu með-
mæli og brýna fyrir drengjum að lesa. Björn
flugmaður er einhver sú bezta drengjabók,
sem jeg hefi lesiö. Ilún er skrifuð af næm-
um skilningi á lífi drengja og hugsunarhætti
og á þann hátt, að allir lesa meö óblandinni
ánægju.
Aðal söguhetjan, Björn, verður ósjálfrátt
aðdáunarefni allra þeirra, sem lesa. Og
drengirnir sjá þar fyrirmynd, sem þeir reyna
að líkjasti, hetjuna, sem ekkert hræddist. — •
Sagan er einnig viðburðarík og með afburó-
um skemmtiieg, svo lesandinn fylgist með
hugfanginn frá upphafi til enda. Sagan á því
brýnt eríndi til drengja og allra, sem drengj-
um unna.
Einnig í öðrum skiiningi er útgáfan þarft
verk. Hún er sem sje gefin út til ágóða fyr-
ir skálasjóð Skógarmanna, til byggingar
sumarbústaðar í Vatnaskógi. Það mál er orö-
ið knýjandi nauðsynjamál, en allmikið fje
vantar enn til framkvæmda. Til þess að reyna
að flýta fyrir því máli dálítið, hafa Skógar-
menn ráðist í þetta fyrirtrki. Það má ef til
vill teljast nokkur áhætta, en þeir treysta
vinsældum sumarstarfsins og vona að það
traust verði ekki til skammar.
Stjórn Skógarmanna má því hafa þakkir
fyrir að hafa ráðist í þessa útgáfu, því það
er þarft verk í margföldum skilningi og
þyrfti að verða grundvöllur að meira starfi
í sömu átt. —a s — y
Dauða hafið.
Hvers vegna hefir það fengið þetta nafn?
Það er vegna þess að engu er líft í því. Vatn-
ið getur aðeins runnið í það, en ekki úr því
aftur, og við það verður eðli ]iess þannig að
allt líf í því deyr.
Athugið nú hversu sönn líking þetta er af
lífi margra kristinna manna. Þeir fara og
hlusta á Guðs orð æ ofaní æ og veita stöðugt
viðtöku, en náðin og krafturinn, ,sem inn
streymir, fær enga útrás og ber því engan
ávöxt í lífi þeirra. Það var eitthvað sem lok-
aði fyrir hið innra líf þeirra og loks varu
endirinn sá, að allt líf dó út. Þú, sem vilt
vera, vinur Jesú, vertu ekki hálfvolgur í á-
huga þínum, vertu brennandi í andanum.
Þjóna Drottni!
Þjóna honum með gleði!
Fundartími
K. F. U. M. og K. F. U. K.
I’yilr uinra íðlldð:
A þriöjudögum lcl. 'áy2 e. h. A.-D. í K.F.U.K,
Á íimmtudögum kl. e. h. A.-D. í K.F.U.M.
A sunnudögum kl. 814 e. h. Almenn samkoma
I’yrlr unglinga:
Á sunnudögum:
Kl. 5 e. h. U.-D. í K. F. U. K.
Kl. 814 e. h. U.-D. 1 K. F. U. M. ^
I yrlr börn:
Á sunr.udögum:
Kl. 10 f. h. Sunnudagaskólinn, lyrir öll börn.
Kl. 114 e. h. V.-D. og Y.-D. fyrir drengi.
Kl. 314 e. h. Y.-D. fyrir telpur.
Útgef.: K. F. U. M. Rvík. Prentsm. Jóns Helgasonar.