Tákn tímanna - 01.04.1920, Side 2

Tákn tímanna - 01.04.1920, Side 2
50 TÁKN TÍMANNA Engin bölvun skal framgr vera. Guðs þjónar skulu honum þjóna; þeir skulu sjá hans auglit og hans nafn skal vera á ennum þeirra. Og þeir skulu ríkja um aldir alda. Op. 22, 3.-5. »Þelta er tjaldbúð Guðs meðal mann- anna: hjá þeim mun hann bústað liafa og þeir skulu vera hans fólk, og Guð sjálfur mun vera hjá þeim og vera þeirra Guð«. Op. 21, 3. Þannig er lýst heimili hinna frelsuðu og þeirra sæla ástandi á hinni nýju jörð, þar sem þeir eiga að búa um alla eilífð. Og þangað er okkur boðið að koma. Vér verðum að berjast gegn syndinni, og fyrir Guðs náð öðlasl alsælu-hlutskifli hinna frelsuðu. F. Kom. Vér höfurn heyrt getið um, að stund- um þegar kaupmenn ferðast um eyði- mörkina með verzlunarleslir sínar, að þá þrýlur vatn; ferðamennirnir hafa engin ráð með að ná í valn — vatn verða þeir að fá, ella er úti um þá. Þeir setja mann á bak fljótasta úlfald- anum, hann ríður af stað að leita vatns. Þegar sá fyrsti er kominn spölkorn. fylgir annar á eftir, svo einn eflir annan. Sá, sem fyrst finnur valn, snýr sér við og kallar til hinna: Kom! — Annar kallar til hins þriðja og svo hver af öðrum gegnum allan flokkinn. Kom! liljómar frá einum lil annars, orðið : Kom ! endurhljómar í eyðimerk- urinnar lireina lofti. Ó, að þetta: »kom« mætti enduróma frá hverjum einasta meðlim í söfnuði Jesú Krists — hljóma óaflátanlega, ó- slitið, svo söfnuður Drottins aétíð beri ávöxt. Vilji Drottins vors og meistara er, að andinn og brúðurin segi: Kom ! sá sem þetta heyrir, hann segi: Kom! og sá, sem þyrstur er, hann komi, hver sem vill, liann taki gefins lifsins vatn. í3að hefir verið sagt, að sérhver krist- inn, sem að sönnu biður með annari bæninni: Til komi þitt ríki! en ekki starfar að hinu mikla verki: að vinna heiminn fyrir Krist, hann lifi í mólsögn við bæn sína. n. Síðasta orustan. Óvinur sáluhjálpar vorrar, hinn inikli upphlaupsmaður gegn stjórn Guðs, hefir ætið leitast við að hnekkja Guðs ríki á jörðinni. Hann hefir ávalt gengið um kring sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann geti gleypt. Hann leitasl sífell við að tæla Guðs fólk og leiða það burt frá Drotni. En svo ákafur sern hann var fyr á tímum, er hann það miklu meira nú á þessum síðustu dög- um. »Hann er í miklum móð, því hann veit, að hann hefir nauman tíma«. Þess- vegna verkar hann ötullegar en fyrri. Hann gerir örvænlingartilraun til að kollvarpa Guðs verki, áður en hann gefst upp og all er mist. Með sex þúsund ára reynslu og æfingu i táldrægni sinni og vélabrögðum, fór hann burt til að herja á Guðs börn í síðustu kynkvísl og reynir að afvegaleiða, ef mögulegt er, jafnvel útvalda. Hann verkar með allskonar krafti, táknum og undrum lýginnar og í allskyns vélum ranglætisins« (2. Tess. 2, 9, 10) lil að leiða sálir burt frá Guði. En Droltinn veil einnig, að vér lifum á síðuslu tímum. Hann veit líka að timinn er stuttur. Veit að náðardyrun-

x

Tákn tímanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.