Tákn tímanna - 01.08.1921, Blaðsíða 2

Tákn tímanna - 01.08.1921, Blaðsíða 2
82 TÁKN TÍMANNA En, þó að dagurinn á þennan hátl myndi lengjast ofurlitið — að mestu leyti einn klukkutíma — er það ómögu- legt að þetta geislabrot ylli þvi, að Ijós- ið skini »nær því heilan dag«. Prófessor Totten í Bandaríkjunum hefir lagt mikla stund á að rannsaka þetta frá stjörnufræðislegu sjónarmiði, og hefir látið prenta vandaðan og ná- kvæman útreikning, þar sem rækilega er sýnt fram á, að með því að taka jafndægur, sólmyrkva og breytingar og reikna aftur á hak frá þessum tíma til vetrarsólstaða á dögum Jósúa, hefir hann komist að þeirri undraverðu nið- urstöðu, að þessi langi dagur ber upp á miðvikudag; en við að reikna frá hinum fyrsta degi sköpunarinnar til vetrarsólstaða á dögum Jósúa, ber langi dagurinn upp á þriðjudag; og hann leið- ir rök fyrir því, að með stærðfræðinni getur maður ekki komist að nokkurri annari niðurstöðu en þeirri, að HEILL DAGUR EÐA TUTTUGU OG FJÓRIR KLUKIíUTÍMAR HAFA VERIÐ FÆRÐ- IR INN í SÖGU HEIMSINS. En vér höfum meira en þella. Herra W. Maunders, F. R. S. A. frá hinum konunglega stjörnuturni í Greenwich, sýnir i ágætri fræðigrein, sem birtist fyrir nokkru, ekki einungis staðinn, þar sem Jósúa lilýtur að hafa stuðið á þeim tíma, heldur og mánaðardaginn og á hvaða tíma dagsins þessi fyrirburður álti sér stað. Orðatiltækið í Jósúabók 1, 14, að »enginn dagur hefir þessum degi likur verið, hvorki fyr né síðar«, er þess vegna nákvæmlega rétt, því að stærð- fræðislega er ekki pláss í veraldarsög- unni fyrir annan eins langan dag. Pró- fessor Totlen fullyrðir, að »hvorki fyr né síðar ....... hefir verið mánaðar- dagur, sem mun verða í samræmi við hinar samanburðarlegu stöðvar sólar- innar, tunglsins og jarðarinnar eins og skýrsla hinnar heilögu bókar gefur til kynna«. En jafnvel þelta er ekki alt. Það stend- ur skrifað í Jósúabók 10, 13, »þá stað- næmdist sólin á miðjum himni og hrað- aði sér eigi að ganga undir nær þvi heilan dag«. Nú sýnir prófessor Totten fram á i útreikningum sinum, að hinn langi dag- ur í Jósúabók, var ekki fullir tuttugu og fjórir klukkutímar, heldur tuttugu og þrir og einn þriðjungs klukkutimi — en þetta er í undraverðu samræmi við orðin: »nær því heilan dag«. En hinn fulli dagur, sem stjörnufræðin heimtar reikningsskil fyrir, er seltur saman á þann hátt, að á dögum Hiskia (Esekia) færðist skugg- inn á sólvísi Akasar aftur uin tíu slig eða fjörutíu minútur (2. Konung. 20, 11) — einmitt það, sem upp á minútu vant- aði til þess að fylla tultugu og fjóra klukkutíma! Rar næst, eftir langan og vandaðan stjörnufræðislegan útreikning, segir hann, að þella atriði »gefi lykilinn að öllu hinu hebrezka tímabili ...... og lcomi heim við hvert einasta árlal í biblíunni niður til fæðingardags Heber«. Og aftur: »Afleiðing þessarar rann- sóknar er það grundvallaratriði, að þrált fyrir alt vort gutl um timareiknlnginn, er það staðfest, að mannkynið hefir al- drei tapað sjödagaröðinni í vikunni og að hvíldardagurinn á þessum siðustu tím- um kemur til vor frá Adam, gegnum flóðið, fram hjá hinum langa degi Jósúa og sólvísi Akasar og úr gröf frelsarans án þess að hafa nokkru sinni fallið úr röð sinnil Enginn dagur er týndur; á engu tímabili vantar dag; öll tímabil

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.