Tákn tímanna - 01.08.1921, Qupperneq 4

Tákn tímanna - 01.08.1921, Qupperneq 4
84 TÁKN TlMANNA og sýnir, hvernig sannleikur og villa lieyja strið um yfirráðin, þar til hin langa barátta endar með afmáun hins illa og dýrðlegri endurreisn allra hluta. Opinb. 21, 1—5. Múhameðstrú, Búddalrú og önnur lieiðin trúarbrögð hafa sínar »heilögu hækur«, sem að einhverju leyti hafa siðgæði að færa, en allar þessar vantar þó það mikilvægasta, nefnilega bjálpar- meðalið til að frelsa mennina frá spill- ingunni, sem syndin hefir steypt þeim í. Þær vantar Jesúm, hinn almáltuga lausn- ara, sem af innilegum kærleika sté nið- ur til neðri hluta jarðarinnar til að frelsa mannkjmið frá spillingu syndar- innar. Að eins biblían veitir oss hjálpar- meðalið: Lifandi frelsara, sem bæði vill og megnar að frelsa hvern einasta synd- ara, sem veitir honum viðtöku (Pgb. 4, 12). Á sama tíma sem siðgæði bib- líunnar er svo mikið ofar siðgæði hinna heiðnu »helgu« bóka, sem himininn er jörðinni hærri, svo býður hún frelsi hinum dýpst sokkna syndara. Sjá má biblíunnar göfgandi áhrif með að bera saman ástandið i hinum ka- þólsku löndum, þar sem biblían er oft- asl óþekt bók og oft bönnuð, og aftur í löndum mótmælenda, þar sem biblían er til á mörgum heimilum. Almenning- ur er betur nppfræddur og fyrirkomu- lagið er miklu frjálslpgra á Englandi heldur en á Spáni og í Porlúgal. Beri mað- ur svo saman fósturland kaþólskunnar, hina suðlægu Evrópu, og Norðurlönd, verður mismunurinn enn þá meiri. það sama mætti segja um muninn á Suður og Norður-Ameríku. Snúi maður sér svo til hinna heiðnu landa, eins og Ind- lands og Kína, þá er myrkrið enn þá svartara þar, þrált fyrir allar þeirra »heilögu« bækur. Enskur jarl nokkur, fríbyggjumaður, heimsótti einu sinni Fidjieyjarnar; höfðu innbyggjendur þar verið mann- ætnr, en sem fyrir starfsemi kristniboð- anna höfðu komist undir áhrif krislin- dómsins, svo þúsundir höfðu tekið sinna- skiftum. I viðræðu sinni við höfðingjann sagði fríhyggjumaðurinn: »Það er aumkv- unarvert að svo skynsamur maður eins og þú ert, skulir trúa biblíunni og á Krist«. Höfðinginn svaraði: »Sérðu stóra steininn þarna? Þar vorum vér vanir að slátra fórnardýrum vorum, manneskjunum, og í þessum stóra ofni, er þú sérð þarna, steiktum við þær áður en vér átum þær i mannætu-veizlum vorum. Væri það ekld vegna biblíunnar og Jesú, sem þú nú talar á móti, mund- um við hafa slátrað þér og etið þig, áður en þú hefðir sloppið frá okkur«. Menn þeir, sem niðurníða biblíuna, meta ekki að verðleikum gæði þau og bless- un þá, er þeir njóta sökum áhrifa hennar. Öll biblian innblásin. Enginn hluti biblíunnar er lil vor kominn sem framleiðsla mannlegs vis- dóms og speki, lieldur er hún öll bein- línis innblásin af Guði, án nokkurrar samblöndunar af mannlegum hugmynd- um og skoðana þeirra manna, er Guð notaði til að færa hugsanir sínar í lel- ur (2. Pét. 1, 21). Höfundar biblíunnar voru aðeins verkfæri, sem Guð notaði, og fyrir munn þeirra kunngerði hann orð sitt, svo »biblían er ekki manna orð, heldur Guðs, — eins og það í sann- Ieika er — og sýnir krafl sinn í yður, sem trúið« (1. Þess. 2, 13). Það er Guð, sem i ritningunni talar til vor, en hann liefir notað munn mannanna. Sálmarnir eru það, „sem hinn heilagi andi hafði fyrir sagt /grir mnnn Davíðs" (Pgb. 1,

x

Tákn tímanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.