Tákn tímanna - 01.08.1921, Side 9

Tákn tímanna - 01.08.1921, Side 9
TÁKN TÍMANNA 89 dimmu, köldu jörð, veitti kraft og hug- rekki til að halda áfram baráttunni. Nú sér hið ummyndaða auga þá björtu borgarveggi, hin skínandi perluhlið, hin gullnu stræti. — Hliðunum er lokið upp og réltlátur lýður gengur inn. Es. 26, 2. Þá munu hinir rétllátu skína sem sólin í ríki föður þeirra. Mall 13, 43. Ekki er furða, þó guðs hörn á öll- um tímum hafi liorft fram til þessa viðburðar með innilegri eftirvænting. Um hann spáði Enok, sjöundi maður frá Adam (Júd. 24.). Um hann söng hið forna skáld ísraelsmanna: »Himn- arnir gleðjist og jörðin fagni, hafið þjóti upp, og alt það, sem í því er; foldin gleðji sig, og alt sem á henni er, já, öll tré skógarins fagni fyrir drotlins auglili, þvi hann kemur, kemur til að dæma jörðina«. Sálm. 96, 11, —13.; 98, 7.-9. Esajas spáði um þenna dag og allir spámennirnir, sem þráðu að »sjá kon- unginn í ljóma sínum.« Es. 33, 17.; Dan. 12, 1.—3. Hvernig getum vér verið undirbúnir þenna dýrðlega viðburð? Les Tít. 2, 11. —13. Hebr. 11, 35.-37. Op. 22, 12. —14. Kæri vinur, láttu guðs frelsandi náð kenna þér að lifa þannig, að orð meislarans hljómi lil vor: »Komið, þér ástvinir míns föður, og eignisl það ríki, sem yður var fyrirbúið frá upphafi ver- aldar«. (Les Jer. 8, 20,; Es. 2. 21.; Op. 6, 16. sjá mismuninn á því og Es. 25, 9., Malt. 25, 34.) L. M. Ferð til íslands. Formaður Norðurlandasambands S. D. A., bróðir J. C. Raft, heimsækir þessa daga ísland. Pað er í sjötta skifli, sem bróðir Raft heimsækir oss. Gjaldkeri sambandsins, H. L. Henriksen fylgir honum á þessari ferð. Frá skýrslu, sem bróðir Raft hefir nýlega samið og ællar að senda til nokkurra blaða félagsins, leyfi eg mér að birta eftirfarandi útdrátl: »Það er mikið gleðiefni að geta enn einu sinni heimsókt vini vora á íslandi. Mér finsl bæði landið og þjóðin gagn- taka mig enn meir því oftar sem eg kem liingað. í fyrstu finst manni bæði landið og að sumu leyli fólkið vera kuldalegt og óaðlaðandi, en maður tekur fljóll eftir, að maður hefir athugað rangt, og þegar maður virkilega fer að þekkja Islendinga, fer manni um leið að þykja innilega vænt um þá. Á bak við kuld- ann og hitt, sem aðeins reynist þynn himna á yfirborðinu, ef til vill mynduð af vindinum kalda og hinni hrjóstrugu nátlúru her, finnur maður auðmjúkl, vingjarnlegt og aðlaðandi viðmót. í íslandi er góður jarðvegur fyrir liinn þriðja engils boðskap. íslendingum þykir mest í varið að rannsaka hlulina. Það sem aðeins reynist glæsilegt á yfirborð- inu, fær fljólt þá meðfeið, sem það á skilið. Þeir fylgja alvarlegum málum með athygli urn leið og þeir lesa þjóða mest af fróðlegum bókum, og eins get- ur maður séð þá þyrpast saman þegar um fróðlega fyrirleslra er að ræða, í hvaða inenningargrein sem er. Þeir láta ekki til lengdar táldraga sig af glamur- yrðum. Þeir leggja sannanir uppfræðslu- mannsins á melaskálarnar og stjórna sjálfir lóðununi. Þeim þykir mest varið í að fá lireint mél úr pokanum.

x

Tákn tímanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.