Verði ljós - 01.05.1896, Qupperneq 2

Verði ljós - 01.05.1896, Qupperneq 2
Á uppstigningardag. „En rneöan liann var að ljlessa yfir l)á skiltl- ist liann frá ]>eim og1 varð uppnuminn til liimins" (Lúk. 24, 51). Jarðlíf frelsara vors er frá upphaíi til enda stór og aðdáanleg keðja undra, kraptaverka og stórmerkja. Þetta birtist Iiegar, er hann var getinn í uióðnrlífi, jrað birtist við fæðingu hans i Betle- heni, það birtist í gjörvöllu starflífi hans, það birtist við upprisu hans frá dauðum og loks einnig við endalok dvalar hans hjer á jörðu. Það er reyndar ekki margt, sem sagt er um síðustu augna- blik hans hjer á jörðunni, en það nægir þó fyllilega til þess að sýna oss, að eiulalok jarðlífs hans hafi verið í fullu samræmi við alt það, sem á uudan var gengið. „Hann fór með læri- sveina sína út til Betaníu, hóf upp hendur sínar og bless- aði þá, en meðan hann var að blessa yfir þá, skildist hann frá þcim og varð uppnuminn til himins“. Þannig lýsir Lúkas þessum síðustu augnablikum Jesú hjer á jörðu í síðasta kapítula guðspjalls síns. Hann, sem látið hafði líf sitt á kvalakrossinum og síðan gengið lifandi aptur út úr gröf sinni, hann fer upp til himins í augsýn lærisveina sinna. „Upp til himius“! segir heimurinn og hristir höfuðið, því að hvergi þykist hann betur sjá heimsku hinna trúuðu guðs barna cn cinmitt í þessu, að nokkur maður skuli, á þessum tímum upp- lýsingar og vísinda, láta sjer annað eins um munn fara og þetta, að Kristur hafi stigið upp til himins. „Stjörnuspekingarnir hafa tekið himininn frá hinum kristnu“, segja þeir, „og gjört guð þeirra húsviltan, því að það, sem þeir kalla himin, er ekkort annað en lopt, óendanlegt og ómælilegt rúm“. „Þeir hafa rannsakað himin- hvoffið“, segja menn, „beint sjónaukum sínum útíhinn miklalopt- geim og ckki að eins rannsakað nákvæmlega það, sem næst oss er, heldur einnig það, sem er lengst burtu, hina fjarlægstu hnetti, cn himin hinna kristnu hafa þeir hvergi getað fundið“! Hverjum skyldi detta í hug að efast um, að þeir segi þetta satt? „Himin hinna kristnu“, sem heimurinn ncfnir svo með fyrir- litniiigu, sjcst ekki gegnum sjónauka nje stækkunargler, hann verð- ur ekki fundinn með neinum hugvitslcga tilbúnum verkfærum. Himin hinna kristnu, þ. e. heimkynni hins lifanda guðs og vors uppstigna frelsara, verður sjeður aðeins gegnum einn einasta sjóu-

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.