Verði ljós - 01.05.1896, Page 8
72
upp með kennÍBgu sinni. Bn svo býst jeg líka við því, að hjer
skilji vegir okkar, að þú viljir ckki fara lcngra. En hjer gct jeg
ekki numið staðar, jeg hlýt að lialda áfram, því einmitt syndleysi
frelsarans knýr mig til þess.
í þetta skipti ætla jeg þó ekki að þreyta þig lengur. Loíi
guð mjer að lifa fram yfir sumarmálin, vona jeg að mjer veitist
nægilegar tómstundir til að halda áfram pistlum mínum um þetta
mikilsvarðanda efni. Þangað til er jeg, eins og hingað til, þinn
elskandi fóstri Hjörtur.
Afofoii, faðir!
(Sbr. Sálm. 51,10.11).
Eptir Btud. theol. Sigtrygg Ghiðlaugsson.
Abba, faðir! orð þíns máttar „verði“
áður tilbjó himin, vötn og jörð.
Gjör mitt hjartað hreint, svo eigi skerði
hugarspilling Ijúfa þakkargjörð.
Abba, faðir! æ þín máttarhöndin
annast, blessar verkin stór og smá;
styð þú veikan vilja minn svo öndin
vilja þínum aldrei snúi frá.
Abba, faðir! öllu vald þitt ræður,
öllu stjórnar líkn og speki þín;
frá þjer seka’ oss burt rek eigi bræður,
blessuð náð þín heyri andvörp mín.
Alt ber speki’ og elsku þinnar vottinn
öllum, sem þjer gefa huga sinn;
tungan veika til þín hrópar: Drottinn!
tak ei frá mjer hclgan anda þinn.
Hver rök færum vjer fyrir sannleika trúar vorrar?
Barnið situr á knjám föður síns og hlustar á orð hans, er
hann sogir því frá hinum almáttuga og gæzkuríka skapara himins