Verði ljós - 01.05.1897, Síða 5

Verði ljós - 01.05.1897, Síða 5
69 leyti fram, vitanlega á mjög svo mismunandi stigi, í goðsögnum (inýtum) þeirra heiðingjaþjóða, er nokkrum þroska hafa náð. Pann- ig t. a. m. í hinum indversku Krishna- og Búddamýtum. Svo sem kunnugt er, hefir því verið haldið fram, að hin kristna trú sje ckkert annað en hin austurlenzka Krishna- og Búddatrú í vest- lenzkum búningi* Harla merkileg staðhæfing! Kristindómurinn, sem með rjetti og valdi lífsins hefir lagt undir sig veraldarsöguna, með því að taka allar heimsframfarirnar í hönd sjer, — hann ætti að vera sprottinn fram af þcim átrúnaði, er hefir flæmt miljónir Austurlandabúa burtu af sjónarsviði allrar veraldarsögu, með því að drepa allar framfarir og sökkva öllu niður í svartsýni og logn- mók dáðleysisins. Framfarirnar ættu samkvæmt því að stafa af aðgjörðaleysinu; lífið ætti að eiga upptök sín í dauðauum! Hví- líkur barnaskapur að halda slíku fram! En þrátt fyrir það skal því ekki neitað, að Krishna- og Búddamýturnar eru sterkur vitnis- burður um hinn óslökkvanlega þorsta mannsandans eptir holdtekju — eptir því, að guð gjörist inaður. Spyrji svo einhver: Hvers vegna hefði guð átt að svala þessum þorsta í vesturlöndum, en ekki í austurlöndum ? — þá hlýtur sjerhver hugsandi maður að sjá, að slíkt er hið sama sem að spyrja: Hví hefir guð kjörið þjóð- ir vesturianda, en ekki austurlanda, til þéss að vera söguþjóðir mannkynsins ? En þeirri spurningu getur vitanloga onginn svarað. Það er ómótmælanleg staðhöfn, að guð hefir gjört það, en — „hver hefir þekt sinni drottins? eða hver hofir hans ráðgjafi vcrið?“ En ef til vill kann nú einhver að segja: „Látum svo vera, að holdtekjan sje lífskrafa mannlegs hjarta, en er þá með því gef- ið, að hún hafi í raun og veru átt sjer stað? Það er sitt hvað, hvað vjer álítum þörf á og hvað í raun og veru er til“. Jeg svara: „Það, sem vort sanna inanneðli i dýpstu rót sinni krefst til þcss að lifa — það hlýtur að vcra til í reyndinni. Um það erum vjer allir, sem lifum, fyllilega sannfærðir. Vjer trúum á lífið — það er hin einfalda barnatrú, sem heldur oss öllum uppi. Vjer trúum því, að í lífinu sje skynsemi og meining og veruleiki, þess vcgna trúum vjer því og að alt það hljóti að vera til, sem útheimtist til þess að geta lifað lífið samkvæmt lögmáli vors inra eðlis. Að segja skilið við þessa trú, er hið sama sem að segja skilið við lifið sjálft. Vjer sökkvum við það niður í svartsýnið, en svartsýnið er dauði. Svartsýnið er andlegt sjálfsmorð, sem optlcga *) Þeasi vlsclómur minnir mig að liafl einhvern tima verið borinn & horð fyrir Islonr.ha lesendur bœði i Fiallli. og Sunnanfara. CAths. þýð.)

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.