Verði ljós - 01.07.1897, Blaðsíða 6

Verði ljós - 01.07.1897, Blaðsíða 6
102 guði og þorir ckki upp að líta í tilfinningu óverðleika síns. Slík bæn mætir oss hvervetna í hinum gamla sáttmála og þannig hafa margir beðið einuig í hinum nýja sáttmála, En að biðja þannig er ekki að biðja i Jesú nafni, heldur eins og gyðingurinn, sem ekki veit eða vill við það kannast, að hciminum sje frelsari fæddur. Sú bæn er og til, þar sem maðurinn með hroka og trausti til eigin ágætis kemur fram fyrir guð, eins og til þess að minna guð á vcrðloika sína, sín góðu verk og sína sterku og hreinu Jrú, eða hann með uppgerðarauðmýkt ber sig saman við þá, er hann hygg- ur sjer verri, ogsegir: Faðir, jeg þakka þjer að jeg er ekki eins og þessi tollheimtumaður! Þannig biðja margir og því miður einn- ig mcðal þeirra, er telja sig í sveit Jesú útvöldu vina, en ekki er slík bæn heldur bæn í Jesú nafni. Sá er þannig biður, biður að hætti fadsea eða annara, er eins og þeir álíta sig svo rjettláta, að ekki þurfi þeir yfirbótar við. En sá, sem kemur frain fyrir guð, og af einlægu hjarta á- varpar hann þannig: Jeg veit það vcl, drottinn minn og guð, að fyrir þjer er jeg ekkert nema dupt og aska, að í þínum augum er jeg cklcert annað en fátæknr syndari, óverðugur náðar þinnar, óverðugur gjafa þinna, og þetta hryggir mig; en jeg kem okki fram fyrir þig í trausti til eigin verðleika njc ágætis, heldur í trausti til fyrirhcita sonar þíns Jesú Krists, sem hefir sýnt mjer þig sem föður minn og kent mjer að biðja: Faðir vor, þú sem ert á himnum, — sem jeg veit að hefir með blóði sínu friðþægt fyrir allar mínar syndir og opnað mjer leið að náðarhástól þínum; og af því hann hefir sagt: „Hvers þjer biðjið föðurinn í mínu nafni, það mun hann veita yður“ — þess vegna kem jcg fram fyrir þig, þess vegna þori jcg að líta upp, þess vegna dirfist jeg að kalla þig fóður, þess vegna áræði jeg að bera fram fyrir þig óskir mínar og þarfir, þú hinn æðsti, þótt sjálfur sje jeg aðeins dupt og aska. — Sá sem með slíku hugarþeli nálgast guð og föð- urinn, hann er sæll og hans bænir verða heyrðar, því hann biður í Jesú naf'ni. Þannig er bænin í Jesú nafni bæði hin auðmjúkasta og ör- uggasta bæn. Hún cr hin auðmjúkasta bæn, að því leyti sem sá er biður í Jesú nafni treystir engu öðru en krapti Jesú friðþæg ingar og hún er hin öruggasta bæn, af því að sá sem biður í Jesú nafni, biður af því að hann veit, að liann á hjá guði hinn bezta árnaðarmann, er samkvæmt fyrirhoitum sínum gcngur að oilífu í fyrirbæn fyrir lærisyeina sína á jörðunni.

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.