Verði ljós - 01.07.1897, Blaðsíða 13

Verði ljós - 01.07.1897, Blaðsíða 13
109 prestastjett vorri er vöknuð löngun eptir að rækja prestsstöðuna meira en að nafninu til; þá munu menn sjá það, hvílíkt ógagn og kvílíkir erfiðleikar leiða af hinum víðáttumiklu prestaköllum, sem menn eru nú svo sólgnir í, af því að menn horfa meira á hinn tímanlega hag sóknarprestanna, sem kann að geta batnað við það, eíi á hinn andlega hag safnaðarlimanna, sem líður við það. Jeg veit það vei, að allur þorri hinnar íslenzku prestastjettar finnur ckki til þessa, einmitt af því að hin sjerstaka sálgæzla er svo til óþekt hugmynd moðal fjöldans af prestunum, en það er eink- um þessi klið prestsstarfsins, sem er gjörð ómögulog með þessari íslenzku prestakallastækkun og prostafækkun. Og jeg man ekki betur en að einmitt minn mikilsvirti and- mælandi, sjera Þorkell, sýndi það berlega á alþingi í hittoðfyrra, að hann er einn af þessum samsteypu-áhugamönnum, er hann í þing- salnum barðist fyrir því, að Byvindarhólaprestakall væri sameinað að fullu og öllu Holtsprestakalli undir Eyjafjöllum og báðir Eyja- fjallahrepparnir gjörðir að einu prestakalli, þar sem áður voru að minsta kosti þrjú. En hver mundi hafa haft hag af þeirri sam- stoypu, ef hún hefði náð fram að ganga? Holtspresturinn hefði ef til vill grætt á því nokkrar krónur, en safnaðarlimirnir hefðu sannarlega ekki á því grætt andlega. Því það liggur í augum uppi, að það getur ekki verið mikil mynd á prestsþjónustu eins manns á öllu svæðinu frá Jökulsá á Sólheiuiasandi vcstur að Markarfljóti og út yfir það. Sem betur fór, fjekk þessi sanisteyputilraun ekki framgang, en það var ekki prestunum að þakka; hefðu þeir einir ráðið, hefði þessi samsteypa náð fram að ganga, engu síður en svo margar aðrar miður heppilegar brauðasamsteypur, sem á undan eru gengnar. Og einkennilegt var það meðal annars við umræðurnar um þetta mál á alþingi, að þar var svo að segja ekki með einu orði minnst á það, hvort þessi samsteypa \ æri safnaðarlimunum í hag, hcldur aðallega, hvort hún væri haganlog fyrir prestinn, og kom þar að þessu sama, sem jeg tók fram áðan, að timanlogur hagur prestsins er hjer vanalega látinn sitja í fyrirrúmi fyrir and- leguin hag safnaðarlimanna. — Þá er að minnast á það atriðið í grein kand. Þórðar Tómas- sonar, sem sjera Þorkell sjerstaklega leggur áherzlu á, sem sje það, scm þar er sagt um kirkjusókn og altarisgöngur í Kböfn. Viðvíkjandi því kemst sjera Þorkcll svo að orði: „Svona munu kirkjurnar hjer á landi hvergi illa sóttar og naumast jafnfáir til altaris í nokkrum íslenzkum söfnuði.“ Þetta álítur sjera Þorkell

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.