Verði ljós - 01.05.1898, Side 6

Verði ljós - 01.05.1898, Side 6
70 einhverjir, sem leggja ljóðin frá sjer aptur, fullir vonhrigði og óánægju: Af því að þeir fuudu ekki það í ljóðunum, sem ]>eir vildu fiuna þar, hafa ijóðiu mist mikið af gildi sínu í augum þeirra, þeir eru óáuægðir við skáldið, og þótt þeir ef til vill ekki heinlinis launi því með lasti, iíemur þeim ekki t.il hugar að þakka því fyrir hið framboðna, sem þó ef til vill var hið bezta, sem skáldið átti til í eigu sinni. Aðrir láta gremju sína og vonbrigði afdráttarlaust í ljósi, lasta, setja út á og suupra skáldið fyrir ljóðin, draga hlífðarlaust iram það, sem ef til vill má setja út á, og hirða þá ekki alt af um, þótt úlfaldi verði úr mý- flugunni, eu fyrir öllu öðru loka þeir samvizkusamlega augunum. Þeg- ar skáldið þannig mætir þögn og þakkarleysi, að vjer ekki nefuum, þegar það mæt.ir eugu öðru en köldum snuprum og útásetningum fyrir jjóðin sín, þá sannfærist það fljótt um, að það getur verið og er opt næsta vauþakklátt verk að vera skáld. Og hve opt varð vanþakklætið svo til þess að draga allau kjark úr skáldinu, svo að það lagði árar' í bát, gróf pundin sin í jörðu, af því að það vildi ekki hætta hjartablóm- unum sínum út í hret og kulda vanþakklátrar aldar, er ekki gat komið auga á fegurð þeirra og dýrmæti! — — Og á hinn bóginu, þegar skáld- ið sjer ljóðunum sínuin vel tekið af ijölda nianua, þegar það verður vart við, að þau strá gleði og yndi í sálir þeirra, er lesa, og sjer þau festast í minni fjölda manna, þá nýtur skáldið þeirrar gleði, sem fæstir aðrir eiga kost á að njóta, þá finnur skáldið, að það er í saunleika þakklátt verk, já þakklátara en flest annað að vera skáld. Og livað mundi fremur geta örfað skáldið og knúð það áfram til æ meiri full- komnunar en meðvitundin um, að blómin úr akri anda þess eru vel sjeð og vel metin af þeim, sem þau eru ætluðV Og hve vex því þá á- ræði samíara áhuga á að ávaxta pund sín sem bezt! Ilvorttveggja þetta, að það er bæði vanþakklátt og þakklátt verk að vera skáld, hefir sjera Valdimar þegar fengið tækifæri til að reyna. En sem betur fer muu liauu liafa reynt hið siðara fyr. Þess vegna liggur nú eptir hann fimtugan alt það, sem eptir hann liggur. Erá þeim degi er hanu sem stúdent hjerna á prestaskólanuin söug yfir látn- um skóla-.og bekkjarbróður síuum (Helga sál. Melsteð stúdeut): „Vjer monuirnir skiljuin ei skaparans dóm og sköpum því sjálfir vorn hag, sem ekkert er annað en ímyndun tóm, er ei stendur lengur en dag“ —, frá þeim degi litu margir til sjera Valdimars sem þess manns, er mundi, eins og nú er framkomið, verða til þess að sýngja drotni nýja söngva meðal þjóðar vorrar. Og einn þeirra manua, er báru þessa von til sjera Valdimars, var garnli Pjetur biskup. Þess vogna fjekk hann því til leiðar liömið, að sjera Valdimar varð einn þcirra sjö manua, er skipaðir voru árið 1878 í uefnd þá, er átti að oudurskoða og umbæta sálmabók-

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.