Verði ljós - 01.12.1903, Page 2
178
VERÐI LJOS!
•jfeimurinn og guð.
Til sannkæra efasemdamannsins.
IÞú segir, sannkæri efasemdamaður, að nútíðarvísindin geri þér ó-
mögulegt að aðhyllast kristnu trúna sem Sannleik, að sú mynd af guði,
sem kristna trúin hefir að geyma, geti með engu móti samrímst þeirri
mynd aí' heiminum, sem nútiðarvisindin dragi upp.
Eg veit, að þú segir þetta satt, — ég veit, að nútíðarvisindin því
miður hrinda mörgura 8annkærum manni út í baráttu og bugarstríð,
út ú brautir efasemda og vantrúar, af því að þeim finst guðs-hugmynd
kristindómsins og heims-hugmynd visindanna lcoma i bága hvað við
annað. Og mér þykir þetta sárt, að hiu vísindalegu sannindi, sem ég
elska, skuli verða til þess að gera þig fjaudsamlegau í garð hinna guð-
dómlegu sanninda, sem ég líka elska. Ég skil ekki, að svo þurfi að
vera. £>ví betur sem ég kynnist þeim sannindum, sem visindin hafa í
Ijós leitt að þvi er heimiun snertir, og því betur sem ég lifi mig iun i
þau sannindi til sáluhjálpar, sem Jesús Kristur hefir opinberað oss að
því er guð snertir, þess dásamlegra finst mér samræmið og þess i'ull-
komlegar virðast mér þessar tvær hugmyndir, guðs-hugmynd kristin-
dómsins og heims-hugmynd vísindanna, koma heim hvor við aðra.
Ég er sannfærður um, að þessi ósamrímanleiki, sem þú álítur að
hér eigi sér st.að, er ímyndun ein. Sú mynd af guði, sem kristindóm-
urinn hefir að geyma, — guðs-hugmynd nýja testamentisins — getur
mjög vel samþýðst þeirri hugmynd um heiminn, sem vísindi vorra
tíma gefa oss — þegar vel er athugað.
Berum saman nokkra höfuðdrætti í báðum þessum myndum.
Vísindi nútímans prédika, að himingeimurinn, sem þessi hnöttur,
er vér byggjum, svífur í, sé óendanlegur; kristindóinurinn prédikar, að
sá guð, sem alt hefir skapað og öllu stjórnar, só óendauleg og ótak-
mörkuð vera. Éinst þér þetta koma í bága hvað við aunað? Mór
finst þetta miklu fremur samrímast hvað öðru mætavel.
Vísindi nútimans prédika, að jörðin, sem guð hefir útvalið oss til
bústaðar, só að eins sem örlítið sandkorn í sarnanburði við alheiminu;
kristna trúir prédikar, að guð, sem vér trúum á sem föður drottins
vors Jesú Krists og föður vorn, sé einmitt sá guð, er útvelur hið auð-
virðilega og smáa.
Visindi nútímast halda þvi fast fram, að heiraurinn stjórnist af
föstum og óhagganlegum lögum; kristna trúin kennir oss, að guð só
sannorður og trúr, reglunnar en ekki glundroðans guð. —
Vísindi nútímans — og það hin nákvæmustu, — játa fúslega, að
þau um siðir reki sig á takmörk, þar sem allar rannsókuir hljóta að
hætta, þar sem hið dularfulla tekur við, liiuir miklu leyndardómar til-