Verði ljós - 01.12.1903, Qupperneq 10

Verði ljós - 01.12.1903, Qupperneq 10
186 VERÐJ LJÓS! feimni. ,.Setjist þér nú þarna og skýrið inér svo frá, hvað yður liggur á hjarta.“ Hr. Greatheart mátti ekkert aumt sjá að hann væri ekki fús til að hjálpa. „Er það um manuinn yðar eða ef til vill um son yðar, sem þér vilduð ráðgast við mig?“ spurði hann aftur, er konan gat enn etigu orði upp komið. „Konur koma sjalduast í eigin erindum, þær hugsa sjaldnast um sjálfa sig eins og karlmennirnir.“ „Nei, óg er ógift“, svaraði hún, „ég kem hingað vegna húsbónda míns, sem ég þykist vita að þér þekkið, — hans Samúels Daðasonar". „Hans Samúels Daðasonar? Jú, reyndar þekki ég hann; fyrir 50 árum vorum við báðir við nám hjá sama manninum. Er hann sjúkur? „Nei, haun er dáinn, — dó snemma í morgun. Þér verðið að fyrir- gefa mér, að ég er hálf utan við mig. En ég hefi verið bústýra hans í yfir 30 ár“ — „—Æ, mig furðar þá ekki á því. Hvað heitið þér? — ójá, Maria Wilkins. Eg skil það mjög vel, að þetta hefir fengið á yður, það hlýtur svo að vera eftir 30 ára samvistir. Hafði hann legið lengi?“ „Nei — eiginlega lá hann alls ekki. En honum fór mjög aftur seinni árin, hann var orðinn svo fölur í framan og máttfarinn i seiuni tið, að ég var altaf að biðja liann um að mega sækja lækni til haus. En þvi var ekki nærri komandi. Þegar ég þar á móti varð eitthvað lasin eða vinnustúlkan, þá var strax hlaupið til læknisius, þótt þess gerðist engin þörf. En þegar hann sjálfur var ..." Hr. Greatheart kinkaði kolli eins og sá, er það kemur ekki á ó- vart sem hann heyrir. „Nei, María, mælti hann við mig; ég þarf einkis læknis við. Það er seigt í mér og það lifir lengst sem hjúum er leiðast, sagði hann, þvi hann talaði ávalt við mig hispurslaust, af þvi ég hal’ði verið svo lengi hjá honum; — það lifir lengst, já, guð veit hve lengi; á morgun, skaltu sjá, er mér batnað. Svo setti ég vínglas inn í herbergið hans og bað hann að hringja ef hann þyrfti einhvers með að nóttinni, meira gat ég ekki gert. Því húsbóndinn var altaf dálítið sérlundaður. Tvis- var var ég við stofudyrnar hjá honum i nótt, því mér leizt ekki á yfir- lit hans, er hann bauð mér góða nótt, en ég heyrði ekkert. En þegar ég svo drap á dyr í inorgun, var mér ekki svarað. Og þegar ég svo lault upp, þá sat húsbóndinn uppréttur í rúmiuu, og—- af þvi ég liefi svo oft séð lík, sá ég þegar i stað hvernig komið var.“ Og bú- stýran faldi andlitið i lófum sínum og grét sáran. „Já, sér er nú hvað! Samúel gamli dauður, svona fórum við allir. Hann var óvenju duglegur kaupmaðurog öll hans orð stóðu eins og staf- ur á bók. Ekki var að tala um annað. Eg þykist líka sannfærður um, að innrætið var betra en almenningur hugði: Eg hefi einu sinni horft í augun á honum, það var eitthvað í augnaráðinu, sem . . . já, þér

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.