Verði ljós - 01.12.1903, Blaðsíða 12

Verði ljós - 01.12.1903, Blaðsíða 12
188 VEBÐI LJÓS! skrifborðið mitt. Hanu er heiðursmaður, sem ég veit, að gerir Jiað íyrir .mig sera ég bið hann um.“ „Nei, sagði hann það? Hvað mér þykir vænt að heyra það . . . Já, víst skal ég verða við beiðni hans. Þér megið búast við mér seinna í dag; ég tek málaflutningsmanninn með mér, það er vandaður og við- feldiun maður.“ „Sjáið þér, Velsby“, mælti hr. Greatheart, er þeir voru á leiðinni heim að húsi Samúels; „Samúel gamli Daðason var eins og þér vitið fyrir löngu hættur að verzla og vini átti hann fáa, ef hann hefir nokk- urn átt, — svo ómanublendinn sem hanu var. En í rauninni var hann allra vænsti maður.“ „Já, ég hefi heyrt yður segja hið sama áður. Nú fáum við að sjá. Ef'tir þeirri reynslu, sem ég hefi fengið við það að hafa dánarbú til meðferðar, verður erfðaskráiu og eftirlátin skjöl oft til þess að sýna manni hina sönnu einkunu og eðlisfar hins látna. Eg skal ekki neita því, að ég hefi við slík tækifæri oft fengið að komast að raun um það, sem ég hefði sízt búist við.“ „Þér vilduð máske, Velsby, líta eftir innihaldi peningaskápsins meðan ég l?s þetta bréf, sem hér liggur með utanáskrift til mín“, sagði hr. Greatheart, er þeir voru komnir inn og hann hafði opnað hirzlur Samúels. „Hann virðist hafa gert mig að skiftaráðanda. En hvað er þetta? Erfðaskrána hefir hann sjálfur samið og undirskrifað með vit- undarvottum málaflutningsmanus-og fógetalaust. Hvað það er líkt Samúel gamla“. Bréfið til hr. Greatheart, sem var margra ára gamalt, hljóðaði svo: Liverpool 15. apr. 188 . . „Velborni hr. Barnabas Greatheart! Háttvirti herra! Bréf þetta, sem þér munuð fá að mér látnum, er að eins ætlað yður, því að ég ætla mér að skrifta fyrir yður í þvi. Æska mín varein áíramhaldandibarátta við erfiðustu ástæður; vinir mín- ir brugðust mér sorglega og fóru illa með mig eða ver en ég þóttist, eiga skilið af þeim. Þetta gerði mig smámsaman að ágjörnum mauun miskunnarlausum og fullum mannhaturs. Eg slcal fúslega við það kann- ast, að óg hefi verið harðdrægur maður og fullur beyskju, og litið með fyrirlitningu niður á meðbræður mína ef ekki beinlínis hatað þá. Guð fyrirgefi mér það. En á þessu ári hefir mikil breyting orðið á mór og hjarta mitt mýkst til muna. Þetta er ekki orðið fyrir áhrif neinnar bókar eða pró- dikunar, heldur er það persóna yðar og dæmi yðar, sem ég get þakk- að það. Þótt eg — og vitanlega aldrei nema að verðleikum — væri fyrirdæmdur og fyrirlitinn af öllum almenningi, svo að allir keptust við að áfellast mig og lasta, sá ég, að þér genguð aldrei úr vegi fyrir mór, eu

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.