Ný evangelisk smárit - 01.01.1900, Síða 1

Ný evangelisk smárit - 01.01.1900, Síða 1
Ný evang'clisk smárit. I. í cg að ganga til guðs borðs? Eftir Thv. Klaveness. Sjartanlega hefir' mig langað að neyta þessa xmska- lambs með yður, áður en ég líðu (Lúk. 22, 15). Gangið til guðs borðs! Þetta er prédikun mín í dag. Sú var tíðin, að liver einasti maður gekk til guðs borðs haust og vor, svo að aldrei bar út af. Flestir þeirra gerðu það æði umhugsunarlaust; þetta var venja, sem allir lilutu að fylgja. Það kom ekki svo sjaldan fyrir, að sami maðurinn, sem var til altaris um sunnudaginn, drakk sig ölvaðan um múntidaginn. Nú eru þeir tiltölulega fáir, sem ganga til guðs borðs. Sérstaklega eru þeir fáir af æskulýðnuin, eink- um meðal karlmanna. Nú verður meir og meir venjan sú, að ganga alls ekki til guðs borðs. Iívað skal segja við þessu ? Eigum vér að óska eldri tímanna aftur? Nei. Eigum vér af fagna yfir ástandinu eins og það nú er orðið? Ejarri fer því. Það er ilt, þegar menn ganga til guðs borðs í algerðu umhugsunarleysi, einungis til þess að víkja ekki frá gamalli venju. En það er einnig ilt, þegar menn hætta að ganga til guðs borðs. Hvað er þá hið á- kjósanlega og rétta í þessumefnum? Hið ákjósanlega og rétta í þessum efnum er, að menn gangi ekki til guðs borðs í tómu umhugsunarleysi, heldur til þess að minnast Jesú, ekki vegna venjuunar, lieldur vegna Jesú. í þeim skilningi segi ég: G-angið til guðs borðs!

x

Ný evangelisk smárit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný evangelisk smárit
https://timarit.is/publication/502

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.