Ný evangelisk smárit - 01.01.1900, Blaðsíða 3

Ný evangelisk smárit - 01.01.1900, Blaðsíða 3
8 að þú snúir við og leitir guðs! — Gakk til guðs borðs! En, því ber eigi að gleyma, að þeir menn eru og til, sem leita guðs, en þora þó ekki að gauga til guðs borðs. Eg hygg, að þeir séu ærið margir. Þeir leita guðs; það er að segja: þeir þrú guð; þeir hafa guðs orð um hönd, þeir biðja guð; þeir treysta guði; þá óar við öllu, sem þeir álíta, að sé synd; þeir vilja fegnir gera það eitt, sem gott' er. En þetta er alt ó- fullkomið og veikt. Brenuandi þrá eftir guði og orði hans, eftir að biðja hann o. s. frv. þekkja þeir ekki; sterka iðrunartilfinningu hafa þeir aldrei þekt; fullvissu um að vera guðs barn eiga þeir ekki til; þeir þora ekki heldur að trúa því, að þeir séu guðs börn; þeim finst þeir ekki lifa sem kristnum mönnum sæmir; hugur þeirra er um of bundinu við heiminn, þ. e. við hið daglega strit og umsvif; í hinum daglegu umsvif- um yfirsést þeim þráfaldlega; þeir verða óþolinmóðir, geðillir, uppstökkir. JÞeir álíta því, að afturhvarf þeirra sé ekki sannarlegt, að þeir séu ekki eins og þeir eiga að vera; þess vegna sé það óráðlegt íyrír sig að ganga til guðs borðs. — Öðrum er á annan veg farið: Þeir leita einnig guðs, þeira er inuilega um það hugað, að lifa í sem nánustu sambandi við guð. En þetta, sem þeim er sagt, að þeir neyti líkama Jesú Krists og blóðs í kveldmáltíðar-sakramentinu, virðist þeim svo undarlegt, já ótrúlegt; þeir geta ekki varist efasemdum, og meðan þeir enn þá kenna efa- semda, þora þeir ekki að ganga til guðs borðs. — Enn eru þeir menn til, sem ætla, að rneðan þeir verði ekki varir við neina löngun hjá sér eftir sakrament- inu, geri þeir réttast í, að ganga ekki til guðs borðs.

x

Ný evangelisk smárit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný evangelisk smárit
https://timarit.is/publication/502

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.