Ný evangelisk smárit - 01.01.1900, Síða 6

Ný evangelisk smárit - 01.01.1900, Síða 6
6 til endurminningar um Jesúm? Hvaða minning skyldi vera fegurri, helgari, dýrðlegri en minning Jesú, hins flekklausa og hoilaga fórnardauða hans? En ekki það eitfc — Jesús er upprisinn frá dauðum. Vér höldum ekki hátiðlega minningu dáins manns, heldur þess, sem dó og sjá, hann lifir. „Hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, er ég sjálfur mitt á meðal þeirra“. Þetta eru haus eigin orð. Hann er sjálfur viðstaddur við kveldmáltíðarborðið. Hann er þar ósýnilega viðstaddur. Hann er þar sá, sem veitir; vér erum gestir hans. Við hvað ertu hræddur? Ertu hræddur við Jesúm? Ertu hræddur við að vera gest- ur hjá Jesú? Ertu hræddur við að sitja að horði með Jesú ? Þegar þú setur þér fyrir sjónir, hversu var háttað lífi hans, er hann umgekst hér á jörðu, og hversu lmnn lét líf sit.t, virðist, þér þá ástæða til þess að vera hræddur við hann ? Er nokkur sá staður til i veröldinni, þar sem þú fremur getur búist við að verða skilinn, mæta umburðarlyndi, kærleika, miskuun- semi, — þessa, sem þú í fátækt þinui þarfnast hvað mest, — en hjáhonum, vini syndaranna? Er það eltki einmitt hann, sem þú þarfnast hvað mest? Hvers vegna kvíðir þú, livers vegna ertu þá ekki glaður, glaður yfir að vera gestur hjá honum, glaður yfir því að mega nálgast hann svo? Og gef nú gætur að, livað það er, sem hann veitir þér hlutdeild í. Hann gefur þér brauðið og segir: „Þetta er minn Ukámi, sem fyrir yður verður gefinn"; hann réttir kaleikinn að þér og segir: „Þetta er blóð mitt, sem fyrir yður úthellist til fyrirgefningar syndanna“. Iiverju öðlast þú þá hlutdeild í? í fórninni, hinni heilögu fórn, sem hann færði á Golgata til friðþægingar fyrir syndir

x

Ný evangelisk smárit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný evangelisk smárit
https://timarit.is/publication/502

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.