Kristniboðinn - 01.05.1934, Blaðsíða 2

Kristniboðinn - 01.05.1934, Blaðsíða 2
2 KRISTNIBOÐINN öllum þjóðfélagsstétlum, ríkir og fátæk- ir, hafa gengið Kristi á hönd og sýnt það áþreifanlega í lífi sínu, að kraftur kross- ins megnar að umskapa syndara. Pessar trúarvakningar hafa m. a. orðið til þess, að Biblían hefir selst meira en nokkru sinni fyr. Einkum hefir sala hennar aukist mjög ört nú 2—3 síðustu árin, síðan heimskreppan dundi yfir. Er fróðlegt í því sambandi að lesa skýrsl- ur Breska biblíufélagsins. Þar má m. a. sjá, að það er ekki síst í kaþólskum lönd- um, að sala Biblíunnar hefir aukist mjög. Er það ekki síst mjög áberandi á Spáni, síðan lýðveldi var sett á stofn og kirkjan var skilin f'rá ríkinu og þar með kaþólska klerkastéttin svift valdi sínu yfir þjóðinni að miklu leyti. I þessu sambandi má geta þess, að evangeliskur kristindómur hefir unnið mikið á í kaþólskum löndum síðari árin, þrátt fyrir afarmikla erfiðleika. Pað hefir einnig vakið mikla eftirtekt, aö ýmsir kaþólskir stjórnmálamenn hafa sýnt evangeliskum kristindómi vinar- hug, eins og t. d. bæði Hitler og Mussolini. Ef vér svo lítum á. kristniboð’ið, þá sjáum vér víða mikinn og glæsilegan sig- ur krossins. Já, það er víst óhætt að segja, að aldrei hafi framgangur fagn- aðarerindisins meðal heiðingja verið meiri síðan á dögum postulanna. Mestu vakningar, sem trúboðssagan getur um, hafa gengið yfir trúboðslöndin nú síð- ustu árin. Nú er ekkert land lokað fyr- ir kristniboðinu, en ýms stjórnarvöld bera vinarhug til þess. Fleiri og' fleiri dyr opnast trúboðinu með ári hverju, já, næstum mánuði hverjum. Hvaðan- æfa koma beiðnir til kristniboðsfélag- anna um fleiri kristniboða, og það er fjarri því að þau geti orðið við öllum þeim beiðnum.:;:) Hin heiðnu trúarbrögð eru að missa tökin á þjóðunum, og í friðvana leit snúa þær sér í aðrar átt- ir til að finna dýpstu þrá sinni fullnægt. *) Evangeliskir trúboðar eru nú alls 30 þús. og þar við bætast svo ca 200 þús. innfseddra aðstoðarmanna. Saga eftir Poul Solberg, skólastjóra. »Því yður er ætlað fyrirheitið og börri- um yðar--------—« Hans gamli Nordstad hætti hér lestr- inum. Hann sat lengi þögull og hugs- andi. Tvö stór tár runnu niður hrukk- óttar kinnar hans — eins og svo oft áður, er hann hugsaði um börnin sín. En orðið varð að fá að Ijúka starfi sínu. Það var eins og sólargeisla brygði yfir andlit hans, enda þótt ofurlítill titringur væri í kringum munninn. Hann þerraði tárin af sér og sagði af öllu hjarta: »Þökk sé þér, góður Guð! —| Þökk fyrir fyrirheitið!« \ Svo fór Hans gamli að syngja. Rödd- in var að vísu dálítið rám, en samt var Sama er að segja um trúboðið meðal Múhameðstrúarmanna og Gyðinga, að þar hefir einnig unnist mikið á nú síð- ustu árin, en það er annars talið erf- iðasta trúboðsstarf kirkjunnar. Saga Gyðinganna síðustu árin, og þá ekki síst síðasta árið, er einnig mjög eftirtektarverð. Eftir heimsstyrjöldina fengu þeir að tilhlutan Englendinga leyfi til að flytjast til Palestínu og setjast þar að, og hétu Englendingar þeim vernd sinni. Þúsundir Gyðinga hafa notað sér þetta boð, og þrátt fyrir miklar erjur og jafnvel blóðsúthellingar við Araba sem fyrir voru í landinu, þá hefir þeim þó tekist að koma sér vel fyrir, og hefir landið tekið algerum stakkaskiftum, þar sem þeir hafa sezt að. M. a. hafa þeir komið upp hebreskum háskóla og bóka- söfnum, og nýlega hafa þeir farið þess á leit við Þjóðabandalagið að þeir fengju leyfi til að endurreisa musterið í Jerú- salem. Og mjög eftirtektarverð hreyf- ing hefir vaknað meðal Gyðinga nú síð- ustu árin í sambandi við heimför þeirra og eftirvæntingu um komu Messíasar. Svo kom byltingin í Þýzkalandi í jan- úar í fyrra, og kom hún einna harðast niður á Gyðingum. Mælt er að 65 þús. Gyðingar hafi flæmst úr landi, og þeir sem eftir eru eiga yfirleitt við bág kjör að búa. Er enginn vafi á því, að það mun auka að miklum mun heim-ílutning þeirra, því að það eru fáar þjóðir, sem kæra sig um, að þúsundir Gyðinga ílytj- fst inn í landið. Yfirleitt hefir óvildin í garð Gyðinga farið mjög í vöxt síðari árin, og lig'gja til þess margar orsakir, en hér er þó ekki hægt, rúmsins vegna, að koma nánar inn á það flókna vanda,- mál. En afleiðingin af þessari óvild er m. a. sú, að Gyðingar einangrast enn meir en verið hefir, og er ekki sjáanlegt, að þeir muni nokkru sinni geta sam- einast vestrænum menningarþjóðum. Það er því ekki um annað að gera fyrir þá en að stofna sitt eigið ríki. Enda er það í samræmi við spádóma, ritningar- innar; þeir munu einnig í þessu efni rætast, því að Ritningin getur ekki rask- ast. Yfirleitt má því segja, að margt bendi til þess, að nú séu fagnaðarerindinu opn- ar fleiri dyr en verið hefir um langan aldur, og undir því er framtíð kirkj- unnar komin, að hún hafi kraft og vilja, til að ganga inn um þessar opnu dyr, áður en þær lokast aftur. En allar hafa þessar björtu hliðar sínar tilsvarandi skug'ga. Guðleysislireyfingin er útbreydd um allan heim. Guðleysingjar hafa ávalt verið til og sömuleiðis guðleysishreyfing- ar. Að því leyti er þetta ekki nýtt fyrir- brigði, og væri ekki neitt annað eftir- tektarvert í því sambandi, þá gætum vér varla talið þetta sérstakt tákn vorra tíma fremur en annara. En alvöruþungi þessa máls er ekki í því fólginn, að guð- leysið er mjög útbreitt, heldur í því, aó guðleysið birtist í skipulagðri al - þjóðahreyfingu undir forystu valdhafanna í einu víðlendasta ríki ver- aldarinnar, Rússlandi. Hin markvissa skipulagning' er nýtt fyrirbrigði og í henni er hættan fólgin. Rússnesku vald- hafarnir fara alls ekki dult með það, að þeir vinna að því með oddi og egg að útrýma allri trú, nema trúnni á Len- in og kommúnismann. Er þeim það svo mikið kappsmál, að þeir hafa tekið það upp sem lið í hinum svo rtefndu »fimm ára áætlunum«. Þessi guðleysishreyfing hefir að vísu fengið mikinn hnekki í Evrópu á s. 1. ári, þar sem þýzka guðleysjng'iasam- bandið, sem var talið lang-öflugasta og bezt skipulagða deild alþióðasambands- ins, var leyst upp skömmu eftir va'laa- töku Adolfs Hitlers. Og skömmu síðar samþykti austuríska þingið lög, sem bönnuðu félagskap guðleysingja þar í landi. Geta má, þess einnig, að norska Stórþingið samþykti á s. 1. vetri lög þess efnis, að herða á þeim fyrirmælum stjórnarskrárinnar, sem leggja refsingu við guðlasti. auðheyrt, að hann hefði haft góða söng- rödd áður. Hann kunni marga kröftug- ustu og fegurstu sálmana utanbókar, og höfðu þeir, oft og' tíðum, verið hon- um lijálp og styrkur. I þetta sinn var þa8 hinn mikli sálmur Páls Gerhardt; »Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg« o. s. frv., er lýsti tilfinn- ingum hans. »Hvers vegna ert þú að syngja afi?« Sá, sem lagði þessa spurningu fyrir gamla manninn, var Þórður litli. Hann hafði komið inn hljóðlega og stóð nú og horfði á afa sinn með hálfgerðum undrunarsvip á fríða andlitinu sínu. Það var eins og hann hefði einhvern pata af því að eitthvert sérstakt tilefni væri til þessa. Þegar afi var í þessum ham, \þá var eins og hann væri bæði nærri og' íjarri. Þórði fanst eins og hann yrði að ganga svo hægt um, enda þótt afi hans hefði ekkert minst á það við hann.

x

Kristniboðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristniboðinn
https://timarit.is/publication/510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.