Kristniboðinn - 01.05.1934, Blaðsíða 3

Kristniboðinn - 01.05.1934, Blaðsíða 3
KRISTNIBOÐINN 3 Guðleysisritum fjölgar með ári hverju, þar á meðal kenslubókum í guðleysi. Níð- ritum um kristindóminn er dreift út, skreytt níðmyndum, og er það einkum verkalýðnum sem ætluð er þessi sálar- fæða. I trúboðslöndunum er það ekki aðeins kristindómurinn sem getur talað um sigra, heldur einnig guðleysið. Þannig er það t. d. ekki síst í Kína. Þúsundir og aftur þúsundir heiðinna manna, hafa snúið baki við sínum gamla átrúnaði og skipað sér undir merki guðleysingja. Og kristniboðarnir, sem þekkja þetta mái manna bezt,, segja hiklaust, að nú standi úrslitabaráttan milli hins vestræna guð- ieysis annars vegar og kristindómsins hins vegar. Heimskreppan síðastliðin ár hefir lamað talsvert kristniboðið, sér- staklega það kristniboð, sem rekið hefir verið af stærri löndunum, t. d. Ameríku; en svo virðist, sem guðleysishreyfinguna skorti hvorki fé né starfskrafta, því að þótt kristniboðið hafi sumstaðar orðið að draga saman seglin að mun, þá heyr- ist þess ekki getið, að nokkurs staðar sé linað á sókninni hjá guðleysingjunum. Orsakirnar til þess, að guðleysio hef- ir náð slíkri útbreiðslu í Kína, eru marg- ar. Meðal annars má nefna þá sorglegu staðreynd, að rotnunin, sem virðist sí- l'elt vera að éta meira og meira um sig í hinni vestrænu menningu, hefir ásamt menningunni borist austur og valdið ægilegu tjóni á þessum hlutfallslega skamma tíma. Það er því ekki undar- legt, þótt hugsandi Kínverjar fyllist þjóðernis-ofstæki, og formæli þeim þjóð- um, sem miklast af þessari »menningu«, sem flytur með sér það mannfélagseit- ur, að alt fer í upplausn, sem bezt var hjá þjóðinni áður. Og af sömu ástæðum er það ekki óskiljanlegt hatrið á »út- lendu djöflunum«, sem flytja þessa drep- sótt inn í landið. Það er því mikið pleðiefni fyrir kristni- boðið, að nú er að vakna skilningur með- al austrænna þjóða á því meginatriði, að hin vestræna menning og kristin- »Afi syngur af því að vel liggur á honum, litli vinurinn minn,« svaraði gamli maðurinn blfðlega og tók Þórð litla á kné sér. »Af hverju liggur þá svona vel á þér, afi?« Hans gamli brosti. — »Guð hefir sagt honum afa þínum nokkuð gott og fag- urt í dag.« »Hvað var það, sem Guð sagði þér?« Afi sat hugsandi um hríð. Hvernig gat hann nú sagt drengnum frá þessu, þann- ig að það festist sem bezt í huga hans? Hann horfði í hrein, einlæg og spyrj- andi augu Þórðar. »Guð hefir sagt mér að hann elski mig, þrátt fyrir það, þó ég sé bæði vond- ur og vanþakklátur,« sagði hann; »og' hann hefir lika sagt mér að hann elski pabba þinn, mömmu þína og' þig, Þórð- ui', og ölaf, Ingibjörgu og önnu litlu; sömuleiðis frændur þína og' frænkur og litlu systkinabörnin þín í Ási. Þetta er dómurinn er ekki eitt og hið sama, held- ur oft og' tíðum hreinar andstæður. Og jafnframt hafa augu langflestra kristni- boða opnast fyrir því, að þeir eiga ekki að flytja lieiðingjunum vestræna menn- ingu, heldur fagnaðarerindið um hjálp- ræði handa öllum syndurum — líka þeim austrænu, án þess að þeir verði fyrst »vestrænir«. Þó eru því miður enn til menn, sem halda fram hinu svo kallaða »menningar- trúboði«; eru það einkum amerískir trú- boðsfrömuðir. Og ef vér svo að lokum rennum aug- unum augnablik yfir hina svo nefndu »heimspólitík« þá mætir oss ægilegur glundroði. Heimskreppan hefir la.st klóm sínum svo djúpt, að þjóðirnar stynja sáran og fá engu um þokað. Milj- ónir manna eiga við sárustu neyð að búa, af því m. a. að það fé, sem þarf til að hjálpa þeim, er notað til að fram- leiða ný og ný morðtæki. Allar friðar- ráðstefnur eru farnar út um þúfur. Þjóðabandalagshöllin í Genéve, sem átti að vera minnismerki yfir friðarvilja og sáttfýsi þjóðanna, stendur hálfbyg'ð með gapandi gluggatóftunum, til ævarandi minningar um máttleysið og óheilindin í öllum afvopnunar- og friðarráðstefn- unum. Þjóðirnar þreyta kapphlaup í vígbúnaði, og það enda þótt þá, sem kunnugir eru, hrylli við þeim ægilegu morðtækjum, sem notuð verða í kom- andi ófriði. Stjórnmálin eru víða orðin svo rotin, að öllum heilbrigðum mönn- um velgir við. Þau eru skrípaleikur einn til að villa fjöldanum sýn, því að hann veit ekki hvað gerist á bak við tjöldin, en þar eru einmitt örlög hans ákveðin. Hitt, sem gerist fyrir opnum dyrum, er oft og tíðum aðeins eins konar »snuð«, sem stung'ið er upp í lýðinn, til þess að hann þegi. Og á meðan þessi skrípaleik- ur stendur yfir, gína fallbyssurnar eins og soltnir ljónskjaftar, reiðubúnir til að rífa í sig það, sem eftir er af þessum upptærðu þjóðaskrokkum. Friðvana, máttvana og hjálparvana þreyta svo mennirnir sína erfiðu göngu »í öskufalli drauma, sem aldrei rætast,« allra draumanna um frið og hamingju. Hjarta þeirra þráir um fram alt frið, líf og kraft — og þess leita þeir. En í hinum torsóttu og villigjörnu öræfum vélamenningarinnar, fara flestir rangar brautir til að leita svölunar. Og' örþrota varpa þeir sér niður við hina fyrstn uppsprettu, enda þótt þeir sjái að hún er óhrein, já, jafnvel þótt þeir viti að hún er eitruð. Og þó heyra þeir í tæru, heilnæmu uppsprettunni, sem er þar rétt hjá. Og' þeir vita, að hvern þanr., sem drekkur af því vatni, mun aldrei að eilífu þyrsta, því að það er lífsins vatn handa dauðvona syndurum. »Hver sem vill, hann taki ókeypis lífs- vatniðx — Op. 22, 17. Kristilegur æskulýðsskóli Oss öllum, sem fýlgjumst ofurlítið með því, sem er að gerast í andlegum mál- um þjóðar vorrar, í trúmálum og upp- eldismálum, er orðið það ljóst, að um það er barist hvort hér skuli á komandi tímum byggja land vort kristin þjóð, er bæði í ti'úmálum og skólamálum, skipar sönnum biblíulegtmi kristindómi í önd- veg'i, eða hvort hér skuli búa þjóð með heiðinglegar lífsskoðanir, sem þó eru allmjög blandaðar kristindómi og litað- ar á ytra yfirborði áhrifum frá honum, eins og' til að gera þær sem aðgengileg- astar fyrir »nútímamanninn«. Alt bend- ir til að hin heiðingleva stefna sé að ná yfirtökunum í bili; kristindómurinn verður að víkja úr skólum landsins, já, jafnvel úr barnaskólunnm verour hann það, sem Guð hefir sagt afa þínum í dag og' þess vegna liggur vel á honum.« Þórður litli sat og hlustaði hugfang- inn. Svo horfði hann beint í augu afa síns, eins og hann ætlaði að reyna að sjá inn í instu fylgsni sálar hans. »Veit hann pabbi þetta, afi?« Skug'g'a brá yfir andlit gamla manns- ins. »Eg er hálf-smeikur um að hann viti það ekki með vissu,« sag'ði hann með hægð. »Jæja, þá ætla ég að segja pabba frá því, afi,« sagði Þórður ákveðinn. »Það skalt þú gera, drengur minn!« Hann strauk hendinni mjúklega yfir ljósa kollinn á drengnum og hafði upp eins og' fyrir sjálfum sér oi’ð spámanns- ins: »Hve fagrir eru, á fjöllunum, fæt- ur þeirra, sem friðinn boða o. s. frv.« Þegar Þórður litli var farinn, tók gamli maðurinn aftur að syngja; »Þig' vantar hvergi veg'i« o. s. frv. Nordstad kaupmaður átti fallegan bú- stað i’étt utan við bæinn, en J'ak fjöl- breytta og velbyrga nýlenduvöruver/lun í miðjum bænum. Hún hafði verið í stöðugum vexti öll árin frá því er hann hóf verzlun sína og hann var orðinn vel- megandi maður. Hann hafði smám saman dregist inn í hið opinbei’a líf bæjarins. Hann var í bæjarstjórninni og nýlega var búið að velja hann í stjórn hins nýja banka í bænum. Hann hafði nóg að starfa eins og gef- ur að skilja og átti ekki margar tóm- stundii', enda kærði hann sig ekki um það. öðru hvoru varð hann að taka þátt í samkvæmum ýmist heima hjá sjálf- um sér eða kunningjunum. Þegar Nordstad kvæntist Dagny Dahl, þá komst hann inn í umhverfi, er hon- um var ókunnugt með öllu. Hann, bónda- son, alinn upp við einfalda og óbrotna sveitasiði, komst þarna inn í tælandi og

x

Kristniboðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristniboðinn
https://timarit.is/publication/510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.