Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Page 1

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Page 1
I. árg. Akureyri í apríl 1907. 5. hefti. í k 1 n g u r i n n. (Framh.) Nú settist hr. Witherington á ráðstefnu með hjallaramanninum, og félst á tillögur hans í þessu máli. Gestirnir komu í tækan tíma, og var séð um að þeim liði sem bezt. Eðvarð litli hafði engar innantökur, og vakti heldur ekki hr. Witherington með skælum á morgn- ana kl. fimm, svo að það var ekkert sérlega óþægilegt að hafa hann. En þótt óþægindin yrðu ekki alveg eius mikil, eins og hr. With- erington hafði búist við, var þó þessi breyting heima fyrir a!t annað en þægileg; hr. With- erington varð fyrir sífeldu ónæði og ófriði út ór endalausu jagi og deilum inilli vinnufólks- 'ns; Júdý var að sífeldum kvörtunum og klögu- málum á bjagaðri ensku yfir eldabuskunni, enda er ekki hægt að neita því, að eldabuskan hafði horn í síðu hennar og Kókó; stunduin var einhver lasleiki í barninu, o. s. frv., o. s. frv., svo að honum fór að þykja heldur ónæðis- samt heima. Svo liðu þrír mánuðir, og engin fregn kotn af bátunum, og Maxwell skipstjóri, sem kom til að heimsækja hr. Witherington, sagðist vera fyrir fult og fast sannfærður um, að þeir hefðu hlotið að farast í storminum. þar er því ekki voru mikil líkindi til að frú Templemóre kæmi til þess að hafa af fyrir barni sínu, réð herra Witiier- ington seinast af að skrifa til Bath, þarsemsystir iians átti heima, segja henni, hvernig öllu væri háttað, og biðja hana að koma og taka við bús- forráðum á heimili sínu. Fám döguin síðar fékk hann svar á þessa leið: Bath, í ágúst. Kæri bróðir Antoný! Bréf þitt barst mér í hendur með réttum skilum síðastliðinn miðvikudag, og skal eg ekki neita því, að mér kom ekki lítið að óvöru inni- hald þess; já, eg hugsaði svo mikið um það, að eg sveik lit í vist hjá lafði Bettý Blobkin, og tapaði þar fjórum skilliugum og sex pens- um. F>ú skrifar að þú hafir í húsinu hjá þér barn, sein frænka þín eigi, hún sem fór til og gifti sig á svo ósæmilegan liátt. Eg vona að það sé satt, sem þú segir, en á liinn bóginn veit eg vel, hvað ungir karlmenn eru vanir að gera sig sekt í, enda þótt, eins og lafði Bettý líka segir, það sé bezt að tala aldrei um slíkt, og helzt af öllu að sveigja aldrei máli sínu að slíkum ótilhlýðilegum hlutum. Eg get með engu móti skilið í því, hversvegna karlmenn í ógiftri stöðu gcti haft Ieyfi til að álíta sig mega standa utan við þann hreinleika siðferðisins, sem ógiftar stúlkur láta sér svo ant um að varðveita, og það segir líka lafði Bettý, sem eg hefi dálítið talað um þetta við. En úr því þetta er nú einu sinni skeð, þá er lnín á sama máli og eg með það, að bæla þetta mál nið- ur svo vel sem við getum. Eg geri ráð fyrir, að þú hafir ekki í huga að gera þetta barn að erfingja þínum, sem mér þætti mjög ótilhlýðilegt, og lafði Bettý segir mér líka, að erfðafjárskatturinn sé lOafhundr- aði, og það getur maður ekki sloppið við að borga. En eg geri mér það nú alt af að reglu að tala aidrei um þess konar liluti. í tilefni af

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.