Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Blaðsíða 18
114 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Presturinn. Fratnh. Angistarsvipurinn hvarf af andliti litla drengs- ins; hann tók húfuna sína og gekk út. Hann hringdi dyrabjöllunni við húsdyr lán- veitandans. Hann kom sjáifur til dyra. Að- ólf var blóðrjóður út undir eyru, og hafði á- kafan hjartslátt. Hann stóð um stund andspænis skuldheimtumanninum, kvíðinn cg hikandi. En svo herti hann upp hugann og inælti einarð- lega: «Eg er sonur Hansens skrifstofufulltrúa, Harin var í skuld við yður.» «Og Jrú ert kominn til að borga skuldina, ungi vinur. Ójá, peningarnir eru verðmætir, og hver og einn þarf á sínu að haltía,» niælti lánveitandinn. «Faðir minn myndi hafa borgað yður skuld- ina skilvíslega, ef hann hefði ekki dáið svona snemma,» sagði Aðólf. ^Rað er þýðingarlaust þetta <ef», þegar um fjánnál er að ræða. Allir eiga að búast við dauða sínum, og taka ekki meira lán en þeir eru færir um að borga.» Grátstafurinn braust í kvcrkum Aðólfs litla, eins og hann ætlaði að kæfa hann; en hann harkaði'af sér, og reyndi að vera djarfmann- legur. Skuldheimtumaðurinn, sem stöðugt horfði á Aðólf, sá þegar að kjarkur hans hafði biiað. «Skuldaði faðir yðar fleirum en mér ein- um? Pú veizt að búið er mér veðsett.» Aðólf drap höfði, og sagði skjálfraddaður: «Ekki einn eyri.» «Mér þykir Ieitt að sclja búslóð ykkar. Faðir þinn var vel að sér ger og drengur góð- ur. — Getur móðir þín borgað skuldina? «Nei, mamma getur það ekki, hún er svo yfirkomin af harmi ogþreklaus; en eg erdug- legur og heilsugóður...........eg lofaði pabba því, að eg skyldi borga skuldina, þegar eg yrði fullorðinn, og eg ætla mér að efna orð mín, — ef þér viljið trúa mér.» Skuldheimtumaðurinn brosti. Hann var ekki samvizkulaus gyðingur, en mælti þó frem- ur kuldalega: «Hver getur bygt á Ioforði ómyndugs unglings?» «Yður er óhætt að trúa mér,» mælti Aðólf litli. «Pabbi sagði ævinlega að eg væri trúr og áreiðanlegur — Trúðu mér! Gerðu það vegna hennar mömmu. Hún má ekki rnissa þessa fáu húsmuni, sem hún á.» «Ójá, viljinn er ávalt góður hjá unglingun- um, og eg held að þú sért góður drengur, en lengi verð eg að bíða eftir peningunum, ef þ ú átt að borga.» «Eg ætla að vera duglegur og árvakur, og ]oá mun Guð hjálpa mér,» Lánveitandinn var því ekki óvanur, að heyra grát og kveinstafi án þess að kenna minstu nieðaumkunar, en hugrekki Aðólfs og sjálfs- traust hafði svo mikil áhrif á hann, að hann fékk áiitáhonum, ogtreysti loforði hans. Fyrst varð hann snortinn af meðaumkun og göfug-' lyndi, og svo kom skynsemin og benti hon- um á það, að þótt hann seldi búið, rnyndi það hrökkva að eins fyrir nokkrum hluta skuld- arinnar. Pað var líka ómannleg aðferð og illa þokkuð að svipta einmana ekkju öllum eignum sínum. Pað kemur illu orði á lán- veitandann, og spiilir atvinnu hans. En hvernig sem þeirri tilfinningu hans var farið, þá trúði hann á framtíð drengsins, og treysti orðheldni hans. «Heyrðu, ungi vinur minn!» mælti hann, «eg ætla að trúa þér. Eg vona að þú skiljir hvílíka ábyrgð þú hefir tekist á hendur. Mig langar til að hjálpa þér, en peningar eru dýrir drengur minn, og þess vegna verð eg að bæta 400 kr. við upphæðina, það eru Iágar rentur, en það er þó betra en ekki.» Aðólf gekk að þessu alls hugar ánægður; honum fanst hann vaxa við að taka sér þessa skyldu á herðar.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.