Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Síða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Síða 19
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 115 sEf þú þarfnast ráðlegginga, mælti lán- veitandinn enn fremur, þá getur þú ávalt hitt tnig heima, en þér er ekkl til neins að biðja mig um peninga. Heyrðu, vinur minn! Móðir þín er svo fá- tæk, að hún getur ekki kostað þig í skóla, Far þú til forstöðumannsins, og talaðu við hann, eins og þú hefir talað við mig. Rað er ekki ómögulegt að hann útvegi þér ókeypis kenslu í skólanum. — Eftir á að hyggja, þið munuð naumast geta haft það húsnæði framvegis, sem þið nú hafið. Eg á ofurlítið hús yzt út á Norðurbrú, í því eru 3 herbergi og garður umhverfis. Rað er að vísu hrörlegt, en við það mætti bjargast. Rað verður langt fyrir ykkur að ganga í skólann, en þið eruð ungir, °g léttir upp á fótinn. F*að kostar ekki nema 80 krónur um árið, en það verður að borga skilvíslega í peningum, ella verðið þið að flytja þaðan aftur. — Jæja, við skiljum hvor annan, vona eg, eða er ekki svo? Aðólf vissi ekkert annað en það, að nú var létt af honum þungri byrði; honum sýnd- ist framtíðin björt og fögur. Hann grunaði ekki hversu margir erfiðleikar myndi fyrir sig *eggjast áður markinu yrði náð. 111. KAPÍTULI. Uokkur ár voru liðin. Ekkjan og synir hennar bjuggu enn þá úti á Norðurbrú. Hús- >ð var lítið og fátæklegt, en fögur og vel vax- m blóm sáust í hverjum glugga, og garður- inn var vel hirtur og snoturlegur. Ekkjan sat við sauma sína frá morgni ti! Fvölds alla daga. — Henni slapp aldrei verk nr hendi. Harmur hennar var nú að mestu sefaður, en henni hafði farið mjög aftur síð- nstu árin. Annars var hún lík því, sem hún hafði áður verið. Aðólf var stoð hennar og stytta, eins og maður hennar liafði verið. Rað var að eins sá munur, að þau hjónin höfðu verið svo sam- rýmd og samtaka í öllu, að engan grunaði, hve ráðvana hún var og ístöðulítil. Nú sáu það allir, að sonur liennar veitti heimilinu aíla forstöðu, og að hún var þess alls ekki um komin af eigin ramleik. Rað var þó ekki Að- ólf að kenua. Hann hefði helzt viljað dylja þess, að það væri hann, sem öllu réði á heim- ilinu. En móður hans þótti það svo mikill heiður, að allir sæi, hversu duglegur sonur hennar væri. Pað var eins og blessun drottins fylgdi Aðólf ávalt og alstaðar í liinu alvarlega lífs- starfi lians. Hvað sem hann reyndi, hepnaðist jafnan vel. Hann fékk ókeypis skólagöngu fyrirsjálf- an sig og bróður sinn, og auk þess gat hann útvegað móður sinni ofurlítinn styrk úr tveim styrktarsjóðum, svo að nauðþurftum heim- ilisins var vel borgið. Hann var mikill metnaðarmaður, en leitað- ist af alefli við að bæla niður hégómagirnina. Regar hann var búihn að lesa undir kenslu- stundirnar á kvöldin, fór hann að vinna í garð- inum eða hjálpa vinnukonunni, sem orðin var gömu! og heilsutæp, við að bera vatn eða höggva í eldinn. Einusinni kom einn skólabræðra hans, er var sonur auðugs málaflutningsmanns, Hellers aðjiafni, til þess að finna hann. Rá var Aðólf úti í garðinum að höggva eldivið. Hann var fyrst að hugsa um að fleygja öxinni, og láta sem hann hefði gripið hana að gamni sínu, en svo varð metnaðartilfinningin hégómagirninni yfirsterkari. »Heyrðu Franz, vinnukonan okkar er göm- ul og hrum, og getur ekki höggvið í eldinn, og mamma hefir ekki efni.á þvíaðkaupa aðra til þess,« sagði Aðólf, strauk hárið frá enn- inu, og horfði einarðlega framan í hann. »Eg myndi gera slíkt hið sama í þínum sporum,» sagði Franz. »Ef þú hefir aðra öxi handa mér, þá skal eg hjálpa þér til, og svo kemur þú heim með mér. Upp frá þessu urðu þeir Franz og Aðólf aldavinir. þótt þessi atburður virðist ekki mik- ilsverður, þáhafði hann þó miklaþýðingu fyr- ir framtíð Aðólfs. Hann var mjög hneigður til náms, og mentun og fróðleikur voru þær hnoss- 15*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.