Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Side 24

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1907, Side 24
120 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. urheims- eða Kanada-eða Vinnipeg-íslenzka, og það af verri endanum, og er þá Iangt komið niður á bóginn Og ekki er svo sem verið að hafa fyrir því, að laga verstu vitleysurnar; nei, er prentað orðrétt upp eins og það kemur fyrir; íslendingum er boðið það sem látið er fljóta í málsulli því. er Vesturheimsblöðin fara með. Það má skilja að íslenzkan veröi svona, þar sem hún er að veslast upp og deyja út í lífsbaráttunni við enskuna, en það er meira en meðalmanns ókærni sem þarftil þess, að bjóða slíkt hérlendis. Sumar af sögum þessum munu vera útlagðar hér, t. d. «Kynlegur þjófur» o. fl., en þó að frágangurinn á þeim sé skárri, er hann þó engan vegin góður. Préntun eraft- ur á móti heldur vönduð, enda er það eina, sem er við flest af þessu dóti. í næsta hefti skal eg reyna að koma með registur yfir hið helzta af dóti þessu, sem þess er vert að það sé nefnt á nafn. JJ —--—— Lóan. Þegar vetrar þrjóta hríðar, þegar auðnast fjallahlíðar, þegar sólin sendir blíðar suniarkveðjur dal og hól, — ægir ljómar út við pól — Sumarhlákur þjóta þýðar þerra vota flóann, þá mun heilsa hauðri voru lóan. Syngur unaðssöngva eina, svífur kát um loftið hreina, friðar, hressir fljóð og sveina frjálsi, létti söngurþinn, fagri, litli fuglinn minn! Bæ í skjóli birkigreina byggir þú úr stráum, aðeins handa ungum þínum smáum. Rína koinu þráir lýður. Rér til sætis fegin bíður; brekkan, sveitin, bali fríður breiða faðminn móti þér, — öllum finst þú syngja sér. Itur sveinn og svanni blíður sálar munað finna oft í hljómi hörpustrengja þinna. Enginn syngur annar betur, enginri fegurr sungið getur; söng.va þína sérhver metur, sem að veit hvað fagurt er. Allir hljóta að unna þér. Ró að hamist hríð og vetur hjarta mitt skal finna endurhljóminn hörpustrengja þinna. — Jón Guðmundsson. Ekkert liggur á. Glæpamaður, nokkur dauðadæmdur, hafði feng- ið loforð fyrir að fá hvern þann mat, er hann æskti, áður en hann væri leiddur til aftökunnar, biður hann um dálítið af jarðarberjum. A, hvað? jarðarber!« hrópaði lögregludómar- inn, »þau eru alls ekki til á þessum tíma ársins. Það verða að minsta kosti tveir mánuðir þangað til þau eru þroskuð.« »Það gerir ekkert, eg get vel beðið svo lengi,« sagði glæpamaðurinn. Vaninn. Uppboðshaidarinn Möller, kunngerir í hátíðlegu heimboði að dóttir sín sé trúlofuð ogsegir: »Hátt- virtu gestir, eg hefi þá gleðifregn að flytja, að dótt- ir mín er í dag trúlofuð — fyrsta sinn — annað sinn — þriðja og síðasta sinn.» Gestgjafinn: Nú, hvað segið þér um rínarvínið mitt, er það ekki ágætt? Gesturinn: Ojú, en betra væri það, ef sjálfrar Rínar gætti ögn minna. Kenslukonan: Hvað er sá maður kailaður, sem segir annað en það sem er. Telpan: kurteis. Prentsmiðja Björns Jónssonar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.