Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Blaðsíða 6
222 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Örstuttu síðar kom hann upp með þeim, og var á undan þeim, Hann kom mótstöðulaust og áhöfnin heimtaði að hann tæki við hafn- sögu. »En setjum nú svo að eg vilji það ekki,« sagði hann rólega. «Rá hefir þú ekkert meira að gera hér á skipinu, það er alt ogsumt«, svaraði bátsmað- urinn, »er ekki svo, piltar?» sagði hann og sneri sér að fólkinu. «Jú, annaðhvort kemur hann*okkur heilum á hófi inn úr rennunni — eða fyrir borð með hann» æptu margir. »Eg læt mér á sama standa um hótanir þær, drengir« svaraði Hawkhurst; »þið hafið hing- að til þekt það til mín, eð eg er öruggur og áreiðanlegur maður, og það er ekki líklegt að eg bregðist ykkur nú. Nú, jæja, fyrst kapt- einninn ykkar getur ekki bjargað ykkur, þá verð eg Iíklega að gera það, en» sagði hann og leit í kringum sig« við erum komnir út úr rennunni —hvort við komumst inn í hana aftur skal eg Iáta ósagt.« »Við erum ekki komnir út úr rennunni« sagði Kain, »það vitið þér eins vel og eg.» »Nú, jæja, ef kapteinninn veit það betur en eg, þá er be?t hann komi ykkur áfram» svar- aði Hawkhurst. - Skipsmenn voru nú á annari skoðun og stóðu fast á því að Hawkhurst tæki við for- ustu skipsins —hann væri hvort sem væri kunn- ugastur. Kain för aftur á skipið, en Hawkhurst gekk fram að bugspjóti. «Eg skal gera það sem eg get, piltar« sagði Hawkluirst; »en munið eftir því ef við rekumst á, á meðan eg er að finna réttu leið- ina, megið þið ekki kenna mér um það. Ögn á stjórborða — Meira á stjórborða —svona — þetta er rétta stefnan drengir!>- kallaði hann og benti á ljómandi blett á milli brimgarðanna, «ögn á bakborða — svona.» Hawkhurst vissi það, að það átti ‘að setja hann á land, þegar tækifæri gæfist, hafði hann því ásett sér, að sigla skonnortunni í strand> og ])að þó að hann færist sjálfur við það. Hann beindi því skipinu út úr rennunni og út í boðana. Örstuttri stundu eftir að hann var búinn að skipa fyrir um stjórnina rakst skipið tvisvar hart á grynningar. Rriðja skifti er það steytti, sneri það hliðinni í veðrið, og flatti mjög; hvass kóralklettur skarst í gegnum borðið og plankana, og sjórinn fossaði inn í skipið. Dauðaþögn féll yfir alla áhöfnina. «Drengir» sagði Hawkhurst, «eg hefi gert svo vel sem eg gat, og svo getið þið snarað mér útbyrðis, ef ykkur sýnist. En það var ekki mér að kenna, heldur honum» sagði hann og benti á kapteininn. »Rað er nú oiðið minst um það vert, hverjum þetta er að kenna,» sagði Kain, «við skulum tala betur um það seinna herra Hawk- hurst, nú sem stendur er líklega annað meira að gerá, en að fara í orðahnippingar. Bátana út, piltar, svo fljótt, sem þið getið, og liver maður taki með sér vopn og skotfæri, Farið hægt og stillilega. Skonnortan stendur hér föst og sekkur ekki. Seinna getum við bjargað öllu úr henni.» Víkingarnir hlýddu skipunum kapteinsins. Öllum þrem bátunum var hleypt fyrir borð. í fyrsta bátinn voru settir allir sárir menn og Klara d’ Alfarez; kom Fransiskó með hana upp á þiljur, og hjálpaði henni ofan í bátinn. Óð- ara enn allir höfðu tekið næg vopn með sér bauðst Fransiskó til að taka við forustu bátsins, og lagði þegar frá. A herskipunum hafði það sézt, að skonn- ortan strandaði, og áhöfnin bjóst við að fara í bátana. þau sneru sér óðara upp í vindinn, settu út báta sína og mönnuðu þá í þeirri von, að geta komist í veg fyrir víkingana, áður en þeir næðu til eyjarinnar, og gæti búist þar til varnar, því að þó að skipin kæmust ekki inn- fyrir rifin, var þó ærið nóg dýpi handa bátun- um. Skömmu eftir að Fransiskó var lagður frá «Hefnaranum« með fyrsta bátnum, skutust þeir frá herskipunum í gegnum brimið til þess að hefta för hans. Ræningjarnir sáu það, og liöfðu

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.