Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Side 18

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Side 18
234 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Læknirinn var á sama máli, og frú Neu- rnann efaðist ekki lengur og fór með barnið út að vagninum. Hún fór fylgdarlaust heim til sín. Hún kom heim með barn úr síðustu Magde- borgarferðinni. Upp frá þessum degi sá Eðmund litli aldrei konuna, sem ætlaði að kyssa hann. — — Nokkrum dögum síðar sat Eðmund í her- bergi fósturföður síns og reyndi árángurslaust að koma honum í betra skap með barnalegu hjali. Ungfrú Neúmann sat gagnvart bróður sín- um, hastaði við og við á drenginn, og var að verða hálf hrædd við það, hvað bróðir hennar var niðurdreginn. Hvað gat gengið að honum? Hann tók ekkert eftir því, sem drengurinn var að skrafa heldur starði hann þegjandi í augu honum. Hvað ætli það hafi verið sem stóð skrifað í þessum barnsaugum og hafði svo mikil áhrif á harðhjartaða og þráa auðmanninn? Ungfrú Neumann leist ekki á þetta, stóð upp, tók í hönd drengnum, leiddi hann út og fékk hann barnfóstrunni í hendur. Svo kom hún inn aftur og settist hjá bróður sínum. »Anton« sagði hún, »mér virðist þú vera búinn að missa þitt járnharða skap og þraut- góða vilja, sem eg hefi svo oft dáðst að og virt þig fyrir. Ó, hvað eg kvíði fyrir því, ef þér snerist hugur, og þú fengir aðra skoðun á ýms- um hlutum.« »Hverju til dæmis?« »Eg ber kvíðboga fyrir, að þú dæmir mildilegar ekkju sonar þíns einhvern tíma.« »Nei, það yrði nú seint. Hún stal af mér syni nn'num, lífsgleði minni og ellistoð! Og ætti eg að fara að dæma hana vægt? Fari hún með krakkann þangað senn að sonur minn er kominn,— Og þó finst mér núna upp á síð- kastið, að unnin hefnd bætti ekki neitt.« Ungfrú Neumann stóð upp úr sætinu, gekk að bróður sínum, lagði hönd á herðar honum og horfði framan í hann. »Anton, skjátlast mér í því, sem eg erfar- in að halda smá saman, að samneyti þitt við Eðmund litla veki hjá þér ýmsar tilfinningar og hugsanir, sem eru þér ekki hollar? Hjá börn- um verða menn svo oft að börnum að nýju sjálfir. Rað væri leiðinlegt, ef þú tækir nú upp á því, að kvelja sjálfan þig með sjálfsávítum. Var það ekki hún, sem gerði þér órétt, þessi kona, sem kallar sig tengdadóttur þína?« »Jú. En þú sagðir áðan, að eg yrði svo angurvær af samneytinu við Eðmund; það er rétt hjá þér. Augnatillit barns, sem okkur þykir vænt um, bræðir smátt og smátt klakann af hjarta okkar eins og hlýr sólargeisli. Heðvig, þú hefur sjálf reynt þetta, annars gætir þú ekki verið svona góð við hann.« »En það ætti ekki að gera þig svona dapr- an. Eg er hrædd um að þú leynir mig einhverju, Anton. Hefir Formann ríkisráð sagt þér eitthvað um tengdadóttur þína, sem hefur komið þér í vont skap?« »Rvert á móti, Formann vinur minn skrif- aði mér, að hann væri sannfærður um, að hún væri alfarin úr Berlín með krakkann. Líklega hefir hún orðið við ósk okkar og farið til Ame- ríku. Hún var ung og lagleg, og ekkja, sem á eitt barn, getur komist í góða stöðu þar vestur frá. Rú sér því, Heðvig, að við höfum enga ástæðu til að vera hrædd um, að hún fari að gera okkur óþægindi. Það var draumur, sem upp á síðkastið hefir haldið fyrir mér vöku á nóttunni.* »Að þú skulir láta drauma fá á þig!« Rað glaðnaði lítið eitt yfir vcrksmiðjueig- andanum, hann brosti, eins og menn brosa að vanmætti sínum. xRað er sitt við hvert aldurskeiðið. Regar við tökum að eldast, förum við að fást við draumarutl meira en á yngri árum. Migdreymdi að sonur minn og kona hans væru komin til mín. Rau voru náföl. Rau féllu méi- til fóta jafnt.« »Eg er viss um, að þú hefur reynst sjálfum þér líkur í þessum draumi, ekki látið bugast hið minsta og sagt við þau: »F*ið völduð sjálf ykkar hlutskifti.« Verksmiðjueigandinn kinkaði kolli.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.