Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Side 4

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Side 4
244 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. og ógæfusömu ævi mína, orðið að bera svo mikla hugraun, að mér hefir oft fundist, að hvað sem yrði til að leysa mig frá því, að sjálfs- morði undanteknu, væri alt blessað og gott. en á þessum fáu mínútum, hefi eg sannfærst um það, að eg er sömu tilfinningum búinn og aðrir menn, og að eg er enn ekki full- þroskaður til að deyja —að eg er of ungur og og óviðbúinn til þess. Eða fer nokkur mað- ur mótmælalaust út af heiminum, á meðan svona fagur himinn er til að elska og skoða, og á meðan kvenmannshjarta er til, sem trúir því að maður sé saklaus, og aumkast yfir ó- gæfu lians. Jú, herra, meðaumkun, líkn og brjóstgæði eru enn ekki flúnar burtu af jörð- unni, og fyrir það finn eg að eg er of ung- ur til þess að deyja. Guð fyrirgefi mér, að eg hélt þær væru horfnar af jörðunni, því að slíkar tilfinningar hafa aldrei birzt hjá þeim, sem forlögin hafa bundið mig í flokk með, og fyrir þá sannfæring mína hefi eg oft þráð dauðann. Og það vildi eg óska, að hinn rétt- láti guð, sem dæmir oss þar, en ekki hér, gæfi mér gögn í hendur til þess að eg gæti sannað það, að eg á ekki skilið svívirðilega refsingu af samsyndurum mínum — mönnunum. Lávarður minn, eg kann ekki lagakróka, og hefi ekki vit á margbrotnum málaflækjum; fyrst og fremst verð eg að halda því fast fram, að eg hefi aldrei rænt, en skilað þeim ræntu því, sem frá þeim hefir verið tekið. Eg hefi aldrei vegið mann, en hlaupið hefi eg á milli þess, er myrða átti, og morðingjahnífsins, Fyr- ir það hafa þeir stallbræður mínir hatað mig og spottað, og fyrir það sé eg lífi rnínu hættu búna af þeim lögum, sem eg hefi aldrei brot- ið. Maðurinn, sem seinast talaði, sagði eg væri sonur víkingjaforingjans. Það eru orð þess versta, forhertasta og samvizkulausasta varmenn- is af þeim öllum, sem standa hér frammi fyrir yður og bíða síns dóms —orð manns, sem ætíð hefir leitað sóma síns og gleði, hugsvöl- unar og uppörfunar í manndráþum. Lávarður minn, víkingaformaðurinn hefir sagt inér það sjálfur, áður en þessi maður þarna myrti hann, að eg væri ekki sonur hans. Son- ur hans! nei, lof sé guði, það er eg ekki. Á- reiðanlega og óskiljanlega hefi eg verið hon- um bundinn og háður, og hann hefir haft mig á valdi sínu. Áður en hann dó, afhenti hann mér skjalaböggul, sem eg hefði séð af hver eg er; en eg hefi mist hann, og sé mikið eftir honum. Að eins eitt hefi eg fengið að vita hjá honum, sem þeir voru vanir að kalla föður minn, það, að hann drap móður mína með eigin heiidi, og það á níðingslegan hátt.» Hér slitnaði ræða Fransiskó af þungu án- gistarandvarpi, svo að hrollur fór um allan mannngrúann. Rað var nú orðið koldimt, svo að dómarinn bauð- að kveikja Ijós, áður en að málsvörninni væri haldið áfram. Óþolinmæðin og æsingin í fólkinu kom fram í Iágu tauti manna á milli, þangað tíl ljósið kom. Dómar- inn heimtaði «hljóð« og var því þegar hlýtt. Fransiskó var beðinn að halda áfram. Hann tók aftur til máls, og fór að segja frá því, sem hann mnndi frá fyrstu bernsku. Eftir því sem efnið hreif hann meira með sér, varð hann mælskari og léttara um. Handhreyf- ingar hans urðu fjörmeiri, áherzlumeiri, en fóru þó ekki út í öfgar eða gönur; þessi föli, ó- framfærni unglingur var orðinn að eldhuguð- um mælskumanni. Hann rakti stuttlega, englögt og skarplega, og með stuggvænlegri nákvænmi öll þess ógurlegu hryðjuverk, sem hann hafði verið vottur að. Rödd hans vottaði það, |að hann sagði satt —sannfæringin barst út frá yf- irbragði hans —sakleysið skein á hinu hreina og greindarlega enni lians, Allir, sem heyrðu til hans, trúðu orðum hans; óðara en hann hafði endað ræðu sína kom upp ókyrð meðai kviðdómendanna, svo sem væru þeir óþolinmóðir eftir að dæma hann sýknan. Enn dómarinn stóð upp úr sæti sínu, sneri sér að kviðnum og sagði þeim, að það væri sín sárbeitta skylda að segja þeim, að þeir hcfði ennþá aðeins heyrt orð, orð sem væri vel hagað og væri nær því sannfærandi, en ennþá væri engin sönnun þeirra fyrir hendi. »Æ,» sagði Fransiskó, hvaða sönnun get eg

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.