Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Side 16

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Side 16
156 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. dúk, og bar þetta vott um að hér var enskur ferðamaður. Önnur konan var öldruð og ekki lagleg, en hin var ung og Ijómandi falleg og Lavarede varð það ósjálfrátt, að stara á hana. Á næstu gatnamótum vildi svo til, að þrír flutningsvagnar mættust þar, sinn úr hverri átt- inni, og varð umferðin við það ógreið. Yngis- mærin fallega komst klakklaust fram hjá tveim vögnunum, en afstaða hennar gagnvart þriðja vagninum varð hættuleg. Hann fór allgeyst og hefði, ef til 'vill, velt henni um koll og slcaðað hana, ef Lavarede hefði þá eigi stokkið frani og gripið í taumana á ækishestinum og með snarræði stöðvað hann og vikið honum til hliðar. Ökumaðurinn bölvaði, hesturinn brauzt urn, göngufólkið í kring æpti, en ungfrúnni var borgið. Hún hafði í svipinn fölnað upp við hætt- una, en náði sér þegar aftur, og rétti hún nú Lavarede höndina og þakkaði honum hjálpina. Englendingurinn og aldraða konan komu nú líka og þökkuðu honum með handabandi. xRað er ekkert að þakka,« sagði hann hálf vandræðalega, »því hér v'ar eingin hæíta á ferðum, ungfrúin mundi liafa getað vikið sér undan. Hestarnir hérna í París fara þó ekki svo geyst, að þeir kollvarpi fólki og aki yfir það,« »En þér hafið eigi að síður lagt yður í hættu mín vegna. Er ekki svo, pabbi? Er það ekki rétt frænka?« »Efalaust, efalaust.« svöruðu bæði með al- vörusvip. »Rá hefi eg leyfi til þess, að þakka yður,« hélt ungfrúin áfram, eg er enn svo óvöti hér á götunum og stirð í snúningunum. Svo er eg altaf ofurlítið hrædd, einkum þegar eg rata ekki og veit ekki með vissu hvert á að fara.« »Get eg á nokknrn hátt gert yður greiða?« sagði Lavarede stimamjúkur. »Viljið þér eigi að eg vísi yður leið?« Faðir meyjarinnar svaraði þessu tilboði »Vér erum á leið til málafærslumanns,« sagði hann. Rað er skrítið, sagði Lavarede »það er eg líka.« Pað er málafærslumaður og skjalavottur, sem vér þekkjum ekki.« «Eins er það fyrir mér.« »Hann býr í Chateaudungötu.« »Minn er þar líka.» »Hann heitir Panabert.« »Minn heitir það sama.« »Petta er altsaman undarlegt« »Já, undarlegt, að svona skuli hittast á, en þá eigum við öll samleið og verðum sam- ferða.« Pegar þau komu upp til skjalavottsins, af- hentu þau fyrirköllin og síðan var þeim fylgt inn á leyndarmálaskrifstofuna. Gamla konan fór þó ekki inn, en beið úti fyrir í forsalnum. »Svo virðist, sem við séum báðir komnir í sömu erindagjörðum«, hugsaði Lavarede og Englendingurinn, hvor fyrir. sig. Herra Panabert gaf þeim ekki langan tíma til þess, að grufla yfir þessu, því þegar komu- menn höfðu heilsað og sagt til nafna sinna, tók hann svo til máls: »Herra Lavarede, hr. Murlyton og ungfrú Aurett Murlyton! Mér hefir verið falið að til- kynna yður þá sorgarfregn, að einn af mínum beztu skjólstæðingum, stóreignamaðurinn Jean Rikard, sé látinn.« »Pað var frændi minn,« greip Lavarede fram í. »Hann var nágranni minn« sagði Englend- ingurinn alvörugefinn. Málafærslumaðurinn hélt áfram máli sínu með mestu rósemi: »Eftir ósk hins látna hefi eg boðað yður hingað til þess að heyra lesna erfðaskrá hans, sem í alla staði er lögformlega samin og stað- fest.« Hann las hinn venjulega formála erfða- skránna fljótt og blátt áfram, en svo þegar aðal- innihaldið kom, las hann hægt og hájíðlega svo hljóðandi: »Að meðtöldum eftirtöldum húsum, lóða- spildum og öðrum fasteignum, ennfremur að meðtöldum vaxtabréfum mínum, hlutabréfum og skuldabréfum, ásamt reiðupeningum hjá

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.