Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Qupperneq 12

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Qupperneq 12
252 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. var vanur að drekka kaffið hjá frú Heiser. Gamii maðurinn, sagöi honum til mikillar undr- unar, að hann mundi veröa staddur heima hjá frú Neumann um klukkan ellefu, og bætti því við, að sér þætti vænt um, að Eðmund hitti sig þar. Ekkert heimboð hefði komið Eðmund bet- ur. Á blaðinu var búsíaöur frú Neumann skrif- aður nákvæmlega; hann sá þá, sér til mikillar undrunar, að frúin og dóttir hennar bjuggu í sama húsi og hann, næst neðan við hann, á fyrsta lofti. Hann hafði raunar oft lesið nafn- ið hennar á hurðinni þar, en ekkert hugsað út í það meira. Hann hafði engan botn í þessu. Ríkisráð- inu hlaut að vera eittbvað sérstaklega ant um frú Neumann. Eömund fór að líta öðrum aug- um á lofræðuna, sem hann hafði haldið um hana deginum áður. Hann hélt að ríkisráðið væri ef til vildi eiíthvað tengdur frú Neumann eftir alt saman. Hann beið þess óþolinmóður að klukkan yrði ellefu. Loksins fór hann af stað og var þá mjög vel búinn. Hann haföi dálítinn hjart- síátt, þegar hann hringdi dyrabjöllunni á fyrsta lofti. Vinnustúlka opnaði og fór með hann inn í mjög snoturt móttökuherbergi. Rar var ríkis- ráðið fyrir og heilsaði honum. «Við leituðumst árangurslaust fyrir um stöðu i gær,» sagði herra Formann. «Stóru ckrifetof- i ■ íar eru ekki hentugar fyrir yður. Nú er lans staða handa yður, sem er mjög við hæfi. Vorum við ekki að tala um frú Neumann í gær?» Eðmund sagði gamla manninum að hann hefði ekki geíað sofið nema hálfa nóttina fyr- ir umhugsun um hana. «Eg frétti í gær,« hélt ríkisráðið áfram, «að hún æskti eftir duglegum, utigum manni í skrifstofuna hjá sér; þar er það einmitt fund- ið, sem við vorum að leita að, svo framar- lega sem þér viljið taka við þeirri stöðu. Jeg get með góðri samvizku ráðið yður til þess að taka boðinu, því að frú Neumaun er bezta hústnóðir.» Eðmund varð glaður við og kvaðst vera viðbúinn að taka þessu. Rað var heldur ekkert, sem gat komið honum betur. Hann var alveg gagntekinn af tilhugsuninni um að sitja við hlið Helenu við sama starf og um daginn. «Segið þér henni,» svaraði Eðmund glað- ur í huga, að eg skuli leggja alt kapp á að vinna að því vel og trúlega, sem mér verður á hendur falið.« Eðmund hjálpaði gamla manninum á fætur, því að hann var fremur veikburða, og gengu þeir síðan inn í næsta herbergi. Rar tók frú Neumann og Helena dóttir hennar á móti þeim. íRað gleður mig mjög,» sagði ríkisráðið við húsmóðurina, «að eg get mælt með þess- um unga manni við yður —herra Eðmund Neu- mann frá Magðeborg.» »Rað er ágætt! Eg var lengi búinn að leit- ast fyrir; við þekkjum herra Eðmund Neu- mann.» «Já, eg held það, herra ríkisráð,» sagði Helena, »herra Neumann var svo góður að hjálpa mér við töluvert erfitt verk.« «Hann gerir það líka framvegis,» svaraði ríkisráðið og gleðin skein út úr augum hans um leið. Unglingarnir litu hvort á annað og roðn- uðu. Frú Neumann réði Eðmund til sín eftir öllum reglum, og æskti þess að lokum, að hann byrjaði þegar að vinna hjá sér. Eðmund kvaðst þess albúinn. Hann aétlaði þegar að fara til Friðriksgötu, þar sem hann átt að vinna framvegis, en þá var honum vin- samlega boðið að borða þar morgunverð, svo að hann varð þar eftir að sinni. Eftir það var borið á borð og sezt að snæð- ingi. Helena sat hjá Eðmund. Hún rétti hon- um alt það, er á borðinu var; frú Neumann og ríkisráðið gáfu gætur að og skotruðu aug- um hvort ti! annars við og við. Þegar búið var að borða, kvaddi Eðmund og fór þaðan á skrifstofuna í Friðriksgötu. Nokkru síðar kom Iielena á eftir honutn og settist í sæti sitt hjá honurn. (Niðurl.)

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.