Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Síða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Síða 17
Á FERÐ OG FLUGl. 15 Hinn ólánssami Bovreuil hafði orðið fyr- ir miklum hrakningum og fémissi í Bordeaux. Fyrst var hann tekinn úr kassanum, og varð að borga fargjald fyrir sig þangað, og svo hæfilegt gjald fyrir kassann og flutning á hon- um til Parísar aftur. Hann hafði mist farmiða sinn, og engum lifandi manni í Bordeux kom til hugar að trua sögusögn hans um það, að hann hefði nokkkurntíma haft nokkurn farmiða í upphafi. Meðan verið var að þvinga þessarupphæð- ir af honum, stóð hann bölvandi og ragnandi og sór hann við höfuð sitt að hefna sín grimmilega á Lavarede fyrir alla útreiðina. Þegar hann hafði borgað allar kröfur til járnbrautarfélagsins, hélt hann að öllu væri nú lokið, og hraðaði sér því niður að höfninni, til þess að ná í eimskipið, ef auðið væri. En þá komu nýjar hindranir á leið hans. Járnbrautarfélagið hafði að vísu fengið nægju síuar, en þá kom tollgæzlan til sögunnar. Var þetta ekki tollsvikaframferði? pað þurfti að athuga; og svo kom lögreglan til þess að athuga, hvort hér væri ekki sviksamlegt athæfi á ferðinni. Málið yrði að fara fyrir réttinn. Slíkt háttalag mætti hreint ekki eiga sér stað óátalið. Bovreuil, sem mest hugsaði um að r.á í skipið, fór ekki að lítast á blikuna, er hann heyrði alt þetta. Hann sætti því lagi að hlaupa af stað niður ti! hafna; innar, og hljóp nú sem faetur toguðu. En er lögreglan varð þess vör, blés hún til eftirfarar, eg nú hljóp heill hóp- ur af lögregluþjónum og hermannalögregluliði af stað eftir honum. Reir blésu í pípur sínar °g æptu: «Stöðvið þjófinn! Grípið þrælinn!« Niður við höfnina náði einn lögregluþjónanna 1 flóttamanninn; þá var fólskan í karli orðin svo æst, að hann snerist á hæli og sló lög- regluliðann utan á vangann svo mikið högg, að hann féll. Sömu útreið fékk tollþjónn einn, er reyndi að handsama hann. En enginn má v>ð margnum, og svo fór Bovreuil gamla. Rétt a eftir hlupu á hann tveir lögregluliðar og yfirunnu hann og síðan tók lögreglan við hon- um sígri hrósandi og stakk honum inn í fanga- klefa og kærði hann fyrir flóttatilraun og of- beldi við lögregluna. Við þetta var látið sitja þann dag og Bovreuil gamli átti að jafna sig í klefanum til morguns. Hann hafði nóg að hugsa og lá við niðurfallssýki af vonsku út af því, hvernig Lavarede hefði farið með sig. Morguninn eftir var hann yfirheyrður, og að réttarhaldinu afloknu var símað til Parísarborg- ar til þess að fá upplýsingar hver þessi Bovr- euil væri. »Stórríkur maður, víxlari og verðbréfasali, sem á mikið undir sér,« svo hljóðaði símasvar- ið. Litlu síðar kom annað skeyti, það var frá Panamaskurðar stjórninni. Hún heimtaði að Bovreuilværi látinn laus,og ábyrgðist alla borgun fyrir hans hönd. Með þessu var fangelsisvist gamla manns-. ins á enda, en yfirvöldin í Bordeaux þurftu einhvern veginn að ná sér niðri á honum; þau settu því upp háa sekt til fátækra og máls- kostnað í rífasta lagi, og auk þess fylstu skaða- bætur til þeirra lögreglumanna, sem hann hafði barið eða stjakað við. Regar búið var að láta hann borga alt*þetta svo hátt, sem frekast þótti fært, var honum slept. Öll þessi fjárútlát urðu ærið beisk jafnmiklum nirfli og Bovreuil gamli var. Hann bældi þó niður gremju sína, en sór að hefna sín síðar. Eins og ungfrú Aurett hafði farjð fram á, hafði Lavarede spurt Bovreuil um, hvernighann hefði komist til Santander; sagði hann frá því öllu saman með gremjublandinni hugar- angist, en á milli fékk hann reiðiköst, einkum þegar hann skýrði frá stóru fjárútlátunum, sem hann hafði orðið fyrir og Lavarede og allir farþegjarnir og yfirmennirnir á skipinu, hlusi- uðu á sögu hans með niðurbældum blátri. Að síðustu skýrði hann frá þvf, hvernig hann með miklum erfiðismunum og kostnaði hefði getað náð í hraðlest frá Bordeaux til Santander og svo á sfðustu stundu náð í skipið. En þegar hann síðar fór að fullvissa tilheyrendurna um að hann væri enginn annar en hinn sanni og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.