Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Blaðsíða 1

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Blaðsíða 1
GULLFARARNIR. Ef ti r Gabriel Ferry. VI. KAPÍTULI. Fabían. Tunglsljósið skein fagurt yfir skóginn, og náttvindurinn vaggaði toppunum rólega, eins og maisökrunum fyrir sóisetrið. Tunglsbirtunni skaut draugalega niður á milli trjánna, ogvarp- aði bleikum blettum á sumaktrjáabörkinn, hnúsk- ana á korkeikunum og Ijósleita laufið á járn- trjánum. Mislitur mosinn á trjánum leit út til- sýndar eins og marglitur dúkur, og vafjurtirn- ar glitruðu eldrauðar innanum silfurblikandi blómaskrúð. I einum stað út við skógarjaðarinn stóðu trén gisið; logaði þar eldur, og bar birtu frá eldinum þar í kring, en því dimmra sýndist aftur vera í skógarþykninu fyrir utan. Tígraveiðararnir höfðu sezt þarna að og kveikt upþ eldinn. Pað voru sömu mennirnir og við höfðum kynst áður úti við vatnsbólið í eyðimörkinni. Risavaxni maðurinn var að steikja stóreflis-ketflykki á glóandi koleldinum. «Já, en þér gáið ekki að því, Pepe,» sagði hann við félaga sinn, sem sat þar hjá, og virt- ist vera í þungu skapi, »að við þyrftum að fara að koma sem fyrst af okkur því sem við höf- um haft upp úr veiðum okkar nú í tvö ár, og reyna að selja það í Aríspe. Eg hefi að eins gert það þér til hæfis að selja hvorki tígrafeldina né púmuskinnið í hasíendunni.* «Og gerir hvorki til né frá; Aríspe hleyp- ur varla frá okkur, og þessum þrem skinnum getum við þó komið af okkur í hasíendunni, N. K. IV.^4. ef alt um þrýtur,» svaraði hinn veiðimaðurinn í versta skapi. «En tækifærið til þess að gera upp reikningana við mannfjandann, sem eg hata af öllu hjarta, og slysaðist á götu rnína hérna á öræfunum, það get eg ekki látið ó- notað.» »Hefndin er ávöxtur, sem er girnilegur eins og margt annað, áður enn menn taka hann, en er beiskur, þegar menn eru búnir að ney.ta hans,« svaraði Kanadarinn stiliilega. «Eg skil þig ekki, Bois-Róse,» sagði Pepe eftir stutta þögn; «hefir þú ekki slegið af heil- marga Apaka, Síúxa og Krákuindíana, að ó- töldum allmörgum af öðru rusli, bæði með byssu og hníf, — og svo ætlar þú að fara að meina mér að jafna viðskiftin við helfjanda minn!» «Pað er alt annað mál, gamli vinur minn; Indíanarnir hafa kvalið mig, höfuðflegið mig til hálfs» — Bois-Róse skaut loðhúfunni aftur á hvirfil, og strauk með fingrinum eftir breiðu öri, sem var meðfram hársrótunuin yfir öllu enninu. — »Peir hafa tekið alt sem eg átti og hafði undir höndum, og ætluðu að drepa mig í þokkabót —við þá hefi eg barizt í neyðar- vörn, en samvizka mín er alls ekki ánægð með það, að hafa sent svo marga rauða hermenn yfir í veiðilönd hinna sælu manna. Indíanarnir eru líka menn, —því megum við ekki gleyma — og þeir höfðu forréttindi til þessa lands, sem við, hinir hvítu menn, svældum undir okk- ur setn okkar eign, samkvæmt þeitn náttúru- lögum, að sá verði að þoka, sem er minni máttar,» 10

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.