Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Síða 4

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Síða 4
76 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. og leita hann þar uppi. Kvaðst Kúkilló skyldi þar taka að sér að senda honum þá sendingu, er honum riði að fullu. Riðu þeir svo á stað þessara erinda, en mæltu sér mót við hina á ákveðnuin stað dagirm eftir. Pedró Díaz átti að hafa forustu þeirra, er á eftir kæmu. * * * * * * * * .* Bois-Róse sat og horfði á Tíbúrsió sem áður. «Það er einmitt aldurinn, sem hann ætti að vera á,» sagði liann; «en hver er maður til að þekkja aftur fjögra vetra barn eftir tuttugu ár? en forlögin hafa flækt mér fram og aftur eins og leikhnetti, og eg hefi svo lengi lifað í náttúrunni sjálfri, að eg efast ekki um almætti forsjónarinnar. Og gæti hún þá ekkigert eittjar- teiknið enn? Jarteikn var það, að eg skyldi finna barnið í bátnum, dauða nær af hungri og kulda, á brjóstum mvrtrar móður. Hver veit? Guðs vegir eru óransakanlegir!» Svo hélt hann lengi áfrain að tala við sjálf- an sig og brosti við. Liðnir tímar liðu fram hjá augum hans. Einn viðburðurinn rak annan; hann leit við og við til hins unga manns og horfði á hann lengi, og gleði- og ánægjusvip brá þá yfir hið stórgerða, andlit hans. Lesandiun hefir víst kannazt við mennina: varðþjóninn frá ströndinni við Elankóvi og há- setann, sem annaðist Fabian á skipinu. Peir voru nú orðnir lagsbræður í fjarlægri heims- álfu. Pó vissi Bois-Róse ekki, að Pepe ,var maðurinn, setn honum þótti klaufvirkastur með að fara með byssuna við Elankóvi. Pepe hafði heldur aldrei talað uni það, enda hvorugur mikið minst á fyrri daga. Og þó höfðu þeir nú verið sarnan í skógunum um tíu ár. Tíbúrsió Arellanos hafði nú sofið góðar sex stundir; nú vaknaði hann, reis upp við olboga og leit forviða í kringum sig. «Nú? hress og brattur aftur?» sagði Kan- adarinn góðlega. Tíbúrsió játti því brosandi. «Eg er stálfrísk- ur,« sagði hann, spratt upp og teygði sig. »Nú má vona eg bjóða yður matarbita,» sagði Bois Róse. Tíbúrsió tók því með þökkum, settist við eldinn og fór að borða ketið með beztu lyst. Bois-Róse horfi á hann með með mestn ánægju. «Eg heyrði sagt frá því í fyrrinótt við vatns- bólið> sagði hann svo, er Tíbúrsió hafði borð- að sig saddan, «að einn af ferðamönnunum hefði fundið yður hálfdauðan í eyðimörkinni — mig minnir að þeir kölluðu hann Kúkilló.« «Pað er rétt« svaraði Tíbúrsió «og þess- um sama Kúkilló á eg að þakka þetta sár, sem þér bunduð um.» «Hvernig getur það verið?» sagði Kanad- arinn undrandi, «menn eru þó sjaldan vanir að bjarga mönnum úr lífsháska til þess að drepa þá rétt á eftir.» »Eg átta mig ekki heldur vel á því, en býst við því, að hann hafi þekt mig á eftir, og þá er skiljanlegra að hann hafi viljað fyrir- koma mér. En lil þess að gera það Ijóst, yrð eg að segja brot úr æfisögu minni . . . Má eg það? . . . Eg er einstæðingur, og mér lízt svo á yður, að eg finn eg laðast að yður fremur en nokkrum mönnum öðrum á æfi miuni, . . . . en það kemur ef til vill af því, að mér finst eg vera svo hræðilega einn og einmana,» sagði hann lágt og raunalega. «Trúið mér þá fyrir yður og málum yðar,» svaraði Bois-Róse hlýlega. «Pér hafið líka — eg játa það, gert mikil áhrif á mig. Við að sjá yður, hafa rifjazt upp fyrir mér gamlir at- burðir úr æfi minni og . . . . en segið mér frá!» «Eg heiti Tíbúrsió Arellanos,» sagði pilt- urinn og horfði beint inn í eldinn, «og faðir minn var gullfari. Hann er dáinn fyrir einu ári, en móður rnína misti eg rétt nýlega.» Svo sagði Tíbúrsió frá því, sem vér mun- um eftir úr frásögu munksiris, heimilisprests Don Agústíns Pena — að móðir sín hefði ver- ið sannfærð um, að förunautur manns hennar hefði myrt hann, til þess að vera einn um gullstöðina, en faðir sinn hefði látið eftir upp-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.