Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Page 7

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Page 7
GULLFARARNIR. 79 hræddur. Og maðurinn, sem eg mintist á við yður, niaðurinn, seni elskaði mig .... Bíðum við . . . kom til mín . . . ogsagði:<> Beygðu kné þín og biddu fyrir henni móður þinni» .... meira mau eg ekki hvað hann sagði.» »Kanadarinn hélt sér en út í skugganum; hann kiptist við sem af þungum ekka. Tíbúrsió hrökk saman, því Kanadarinn bætti við og sagöi: « . , . móðir þinni, sem eg fann dauða við hliðina á þér.» «Já, svona var það— þessi orð voru það! . . . En hver getið þér verið, sem vitið svo vel um þessa óttalegu stund ?« Tíbúrsió spratt upp. Kanadarinn stóð upp, án þess að segja nokkurt orð, beygði kné sín og hrópaði í of- urgleði sinni, en tárin runnu niður eftir kinn- unum : «Eg vissi það, góði guð, að þú mundir einhverntíma senda hann til mín aftur, þegar hann þyrfti föður með. Fabían! Fabían, það .var eg .... eg var þessi maður ...» En cétt í sömu svifunum brá fyrir leiftri, skot skall við og kúla flaug rétt fratn hjá Fa- bían og skall í jörðina. Pepe spratt upp eins og elding. Báðir þrifu þeir óðara til byssna sinna. 'iRetta skot var mér ætlað!« sagði Tibúrsió. «Eða mér þá.!» svaraði Pepe; -;eg hefi heyrt það, sem þið voruð að tala um, og af því eg var ekki alveg utan við þetta, sem gerð- ist í Elankóvi ...» »Hvað? við Elankóvi,» sagði Kanadarinn, «þú veizt . . .« »Enginn tími til að tala um það nú, en þið ráðið nú samt ekki úr þessum vandamál- um nema tneð minni hjálp, en nú er víst bú- inn að finna unga greifann. En það verður nú að bíða. Pú þarna, Bois-Róse, gáttu beint í áttína, sem skotið kom úr. Við hérna hinir skulum fara hinumegin, ef fanturinn kynni að læðast í kring.» Og svo fóru þeir sinn í hverja áttina. Allir fuglar liöfðu hætt að kvaka af hræðslu við skotið. Ekkert annað heyrðist en brak í þurrum greinunum undir fótum mannanna og þyturinn í morgunblænum hátt upp í skógar toppunum. Pepe og Fabían—vér ætlum að kalla Tí- búrsíó því nafni héðan af — lögðust þar í fyr- irsát. Tóku þeir tal saman, og reyndi Pepe að fá hann til að muna eitthvað meira en það, sem hann hafði sagt Kanadaranum; «því þessi maður,« sagði hann, «sem tók yður upp á arma sína í bernsku, veit ekkert meir en þér . . . en það veit eg. * «Svo segið þér það þá í guðsbænum,» hróp- aði Fabían. «Heldur lægra!» sagði Pepe, »fjandmaður ættar yðar er hér á næstu grösum í skóginum, þótt auður sé. Pað getur að sönnu skeð hann hafi ekki þekt yður . . . eg gerði það ekki heldur fyrst í stað.« «Nú, hann, hvaða hann?« kallaði Fabían. »Hann, mannfjandinn, sem myrti hana móð- ur yðar og stal svo frá yður titlunum, auð- num og nafninu.» «Er eg þá auðugur og af göfugum ætt- um?>- svaraði Fabían. »Já, eg held það og vil það,» sagði Pepe «en blóðið hefir hann ekki getað tekið úr yð- ur, þótt auðurinn sé farinn.»- «Hvað gerir það?» sagði Fabían. «Pað gerir mikið til, En eg þekki tvo menn, sem ætla að útvega yður alt þetta aftur, eða deyja ella.» «Og móðir mín?» sagði Fabín. «Ja, herra Fabian, umhugsunin um móður yðar og yður hefir haldið vöku fyrir öðrum þeirra marga nóttina. Hann hefir heyrt angist- arópið hennar óma í eyrum sér í næturkyrð- inui, skógardjúpunum og vindþytnum, . . , . hann hélt fyrst jsað væri vindþyturinn, þegar, hann heyrði það óp . . . . það var dauðaóp aumingja móður yðar.» «Um hvern eruð þér nú að tala?» sagði Fabian. «Um mann, sem hjálpaði morðingjum móð- ur yðar til, án þess að vita af því. En bölvið

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.