Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Qupperneq 16

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1910, Qupperneq 16
88 NÝJAR KVÖDLVÖKUR. og skelti baðstofuhurðinni hart á eftir sér. Sig- mundur sagði ekkert, en hélt áfram að tálga. Eftir dálitla stund heyrði hann einhvern hávaða fyrir sunnan bæinn. Hann leit út um gluggann og sá, hvar Stína hljóp suður götu með fötu í hendinni. Hann opnaði gluggann ogkallaði eftir henni. Hún nam staðar og leit við. «Mér var sagt að fara fram á stekk með mat handa piltun- um,» svaraði hún. «Þess þarf ekki — þeir verða ekki svo lengi.». «Já — en mér var sagt að fara,» svaraði Stína og ætlaði að halda áfram. < En eg segi þér nú að fara ekki,» sagði Sigmundur og hækkaði dálítið róminn. «Ress þarf ekki — það yrði bara ómakið.» Stínavar í hálfgerðum vandræðum. Samtsneri hún aftur og labbaði heim fremur ólundarleg á svipinn. ----— Rorgerður keptist við vinnu sína um daginn. Hún var ekki í rónni, nema láta eitt verkið taka við af öðru; með því móti reyndi hún að bægja frá sé/þeint hugsunum og óróleika, sem ásótti hana. En um kvöldið, þegar hægðist um í bæn- urn, börnin voru háttuð og sofnuð og fólkið í þann veginn að hátta líka, þá fann hún, að sér hefði ekki tekizt að yfirstíga misfellurnar <j sama hátt og áður, eða sefa sjálfa sig, þeg- ar eitthvað kom fyrir. Og kvöldið næsta á und- an þrengdi sér fram í huga hennar; hún sá hvamminn sinn gamla eins og töfrandi mál- verk fyrir framan sig. Hún fann, að hún varð að láta undan —að hún mátti til að brjóta heil- ann um þetta, þó að það yrði bara til kvalar, Hún varð að finna einhverja úrlausn; þetta á- stand var óþolandi. Svo gekk hún fram, svo að lítið bar á, og upp á stofuloft. Þar settist hún á kassa og huldi andlitið í höndum sér. Fyrst fór hún að rifja upp fyrir sér það, sem gerzt hefði um morguninn, og henni gat ekki liðið það úr minni, hvað Sigmundur var ósanngjarn og ónotalegur. Hann hlaut þö að vita, að hún hafði komið seint heim og að hún mundi vera þreytt —og jafnvel hugsa, að hún væri kannske lasinn, úr því að hún fór ekki á fætur eins og hún var vön. Og ekki var það svo oft, sem hún fór að heiman, að hann þyrfti að sjá ofsjónum yfir því. En í stað- inn fyrir að tala við hana nokkur orð, þá laum- ast hann á fætur fyrir allar aldir —hún vissi svo sem þegar hann fór, — og koma henni síðan á þennan hátt í skilning um, að hún hefði vanrækt skyldu sína. — Auðvitað hefði hún aldrei ált að fara þetta í gær; það hefði á- reiðanlega verið lahg-affarasælast. Rá hefði hún verið laus við þessar áhyggjur og óþægindi. Og hvaða dæmalaus fyrirmunun gat þetta ver- ið á henni, að láta leiðast út í þennan hugs- ana-hringlanda og fara að rifja upp fyrir sér liðna daga. Hvaða gagn var að því nú —var ekki bezt að láta það alt eiga sig og hugsa bara um að sinna skylduverkum sínum róleg og einbeitt? Ekki mundi verða Iéttara að leysa þau af hendi, ef einhverjir draumórar færu að fá yfirhönd yfir henni, það hafði hún fundið bezt í dag. Nei, það var um að gera að lifa í þeim heimi og verkahring, sem hún átti nú heima í, og lifa fyrir hann, ------og þá var líka um að gera að útrýma öllu, sem gat truflað þau áform og spilt því starfi, —En hvernig gat þá staðið á þessu uppátæki að sleppa sér út í þessar hugsanir nú, það sem var þó í raun- inni svo fjarlægt henni, síðan hún stiltist og komst í alvöru lífsins? Var hún aðverðageð- veik eða hvað? Vonandi að guð gæfi að svo væri ekki. — Óskiljanleg var hún, þessi við- kvæmni hennar i morgun fyrir ónærgætni Sig- mundar, — þetta var ekkert nýtt; hún mundi eftír svo mörgu, sem var líkt þessu, og sjálf var hún kannske ekkert betri í þeim sökum — hún vildi að minsta kosti ekkert um það dæma. Líklega var nú þetta sprottið af því, að hugur hennar var í svo miklu uppnámi frá því í gær- kvfeldi. Og þá kom hún enn þá einu sinni að sömu ráðgátunni: Hversvegna komst hún í þessar hugleiðingar, og einkum —hvaða ósjálf- ræði var þetta, sem gre'ip hana, þegar hún

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.