Nýjar kvöldvökur - 01.03.1924, Qupperneq 6

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1924, Qupperneq 6
36 NYJAR KVÖLDVÖKUR. setn hún vildi veita honum Iiðsinni sitt, þó með mestu lítilþægni og hálffeimin. Svo spurði húti hann í mestu einfeldni, hvernig hún gæti orðið honum að liði. Með þessu hafði hún nú unnið allan bug á manninum. Hann skóf ekkert utan af fyrirætlunum sínum, sem voru í því fólgnar, að ná drotningunni á sitt vald og koma henni fyrir katlarnef. Hann sagðist hafa fyrirheit um fulla poka af gulli frá fjandmönn- um kcnungs fyrir sorgina og ástvinartapið, sem Qústaf Aðólf biði, ef þetta hepnaðist. Hann sagðist þekkja vel háttu drotningar, þeg- ar hún væri að ferðast ein úti, til þess að heimsækja aumingjana í borginni og líkna þeim á ýmsan hátt. Petta ætlaði hann að nota sjer á mjög slunginn hátt og hjelt því ótrautt fram, að það mundi lánast. Hann ætlaði að semja brjef, stílað til drotningarinnar, frá einhverjum aumingja, sem bæði hana ásjár, og helst að heimsækja hann, því að hann þyrfti bráðrar hjálpar við. Karin átti að leggja fast með því, að drotningin færi. Svo þegar hún væri komin af stað, átti vagn að bíða hennar við Frúar- kirkjuna og munkur, sem tæki á móti henni og vísaði henni veginn til staðarins, sem tek- inn var til í brjefinu, og þaðan átti hún ekki að eiga afturkvæmt. Karin átti að segja drotn- ingunni, að þessi munkur hefði fengið sjer brjefið til hennar. Munkurinn átti svo að taka sjer sæti í vagninuin hjá drofningunni með rjefti hins heilaga manns og svo aka á tiltek- inn óhultan stað. Pegar svo alt þetta væri komið í kring, ætlaði þessi sómamaður að giftast Karin og hjet henni gulli og grænum skógum.* »Var það munkur?« spurði jeg og varð hugsi. »Já. En finst þjer þessi skammarlega fyrir- ætlun nokkuð betri eða rjettmætari fyrir það, þótt munkur sje með í henni?« »Sei, sei. nei! En . . . ó-já . . . Ef þetfa væri nú Úlrik ApfelbaumN »Hvað! — Geturðu ímyndað þjer . . .?« »Jeg ímynda mjer ekkert. Eu eftir á að hyggja. Hefir þú brjefið til drolningarinnar?* »Já, já,« svaraði Hans og dró brjef upp úr vasa sínum. »Ágælt! Látum okkur nú sjá, hvað í því stendur.* Utan á uroslagið var ritað með allgóðri hönd: »Til hinnar göfugu, háættuðu og góðu drotn- ingar í Svíþjóð*. Jeg braut innsiglið af brjefinu og las inni- hald þess: »Göfuga, góða drotning! Hver er sá, sem ekki þekkir mildi yðar, hjálpfýsi og góða hjarta, sem þjer látið ó- trautt í ljós við okkur smælingjana og aum- ingjana! Jeg dirfist að skrifa yður þetta brjef einungis vegna þess, að jeg hefi heyrt svo margt fallegt um yður sagt og veit að það er satt. Jeg bið yður — bið yður af insta grunni sálar minnar — að líkna mjer, aumingja, sem á mörg börn og veika konu og er sokkinn djúpt í eymd og volæði. Konan mín er við andlátið, jeg er sjúkur og börnin mín nakin og hungruð. Ó, komið strax og líknið okkur! Góður maður, munk- ur, sem fátækur er af veraldlegum auði, en ríkur af mar.nkærleika, hefir Iitið í náð sinni til okkar, og hefir heitið mjer því, að bíða yðar með vagn við Frúarkirkjuna og leið- beina yður heim t'l mín, þar sem við öll þráum komu yðar eins og blindur maður sólargeisla. Guð varðveiti yður og hann! Óhamingjusamur eiginmaður og faðir.« »Hjet Karin þín manninum, að afhenda drotn- ingunni brjefið?* »Já, um klukkan átta í kvöld.« »Jeg fer að halda, að hún sje bæði hyggin og hugrökk stúlka. Hún á ekki marga sfna jafningja.« »Pað vissi jeg nú fyrir, en . . . þú hefir ekki heyrt alla söguna enn. Maðurinn sagði henni, til þess að sannfæra hana um, að hann með þessu móti fengi næga peninga til þess að þau gætu gifst og lifað góðu lifi — og hún ljet sem hún væri orðin mjög áköf að það tækist — að kjörfurstinn, Maximilian, sem flúið hafði borgina, hefði látið fela undir her-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.