Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Page 4
178
NYJAR KVÖLDVÖKUR
Og vordraumar vakna í sál,
þótt vakir þrengist á álum.
— Oss hlýnar í brjósti í œsku og elli
við ylinn frá jólabálum.
Við huggumst því heims um ból
helg eru jól
og hrœrumst við barnanna bœnasöng,
borinn til drottins af óspiltum sálum.
Nú gista oss gleðileg jðl,
en — gleymum því ekki að vanda,
að hjarta mannsins er hásœtið besta,
og hátíðin sönnust í anda.
Hefjum í hásœtið fyrst
hinti heilaga Krist,
svo afmœlisbarnið sje ei meðal gesta,
sem utan við dyrnar í myrkrunum standa.
Jóhann Frimann.
JÓLAHUGLEIÐING.
EFTIR SÍRA FRIÐRIK RAFNAR.
Lúkas 2, 1—14.
Sjá niorgunstjarnan blikar blíð,
sem boðar náð og frelsi lýð
og sannleiks birtu breiðir. —
Sálmab. 62, 1.
Svo er sagf, og mun satt vera, að aldrei
er eins dimt eins og rétt undir dagsbrún-
ina, að nóttin sé'dimmust síðustu augna-
blikin áður en aftur fer að elda. Þá er
eins og myrkrið taki á öllu,‘sem það á til,
og hertýgist af öllu’afli gegn áhrifum og
mætti ljóssins. En ' þegar . aftur eldar af
degi og roðnar á austurbrún himins af líf-
gjafanum mikla og Ijósvaka heimsins, sól-
inni, er eins og myrkrið snögglega missi
mátt og getu, skuggarnir dreifast, nætur-
húmið eins og leysist í sundur, og áður
en varir, eru mögn næturinnar rekin á flótta
og horfin lyrir geislaflóði morgunsólarinn-
ar. Sá sem ferðast hefir að.næturlagi og
lifað þá stund að sjá sólina og Ijósið bros-
hýrt og blessað verma aftur og glæða jörð-
ina, vekja af næturdvalanum jurtir og dýr,
og sér jurtirnar brosandi teigja krónur
sínar móti Ijósinu og lífinu og heyrir fugla
loftsins og dýr merkurinnar syngja skapar-
anum fagnandi lofgerð og dýrð, hann
gleymir trauðlega þeirri stund. Því engin
stund sólarhringsins er eins þrungin dýrð
og himneskri fegurð eins og morguninn,
dagrenningin, upprisa og endurvakning alls
lifandi á jörðu tii starfa og lífs, þetta dýr-
lega sigurtákn lífsins, ljóssins og kær-
leikans.
Það sem við minnumst með jólunum, er
ein slík morgunstund, þegar eldaði í aust-
urátt á himni mannkynsins og ljósið mikla>
frelsarinn Jesús Kristur var fæddur í þenn-
an heim. Með fæðingu hans hefst ný dag-
renning meðal manna; myrkur fávizku og
syndar, eymdar og siðleysis er á flótta rek-
ið, Ijósið úr austrinu boðaði hirðunum við
Betlehem dag frelsis og friðar, sáttar og
syndleysis.
Jólafrásaga Lúkasar, þessi dásamlega ein-
falda frásögn, sem inniheldur í einum 14
versum tæmandi frásögu um hinn stórfeld-
asta og áhrifaríkasta viðburð, sem orðið