Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Side 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Side 9
N. Kv. GOTT FÓLK 85 alvara, og þess vegna er eg kornin, og hér vil eg vera. Mæðulegt andvarp steig upp frá brjósti ömmunnar. — Eg skil þetta hreint ekki. Hefur nokk- ur verið vondur við þig, elsku barn? — Nei, nei, amma mín. Það hefur enginn verið vondur við mig. Telpan þagnaði and- artak. En það hefur heldur enginn verið góður við mig, bætti hún við. Amman varð hugsi og það hvarflaði að henni, að sennilega myndi teipuna liafa skort það hlýlega atlæti, sem börnum er svo mikil þörf á, fram eftir aldri. En allt í einu leit telpan snögglega niður fyrir sig og sagði á lægri nótunum: — í sveitinni eru það víst ekki aðrar en giftar konur sem--------- En nú greip amman snögglega fram í með höstum rómi: — Eg held þú sért að tapa þér, krakki. Það var ekki laust við að telpan færi dá- lítið hjá sér. — Nú, eg á bara við, að þar eru það ekki aðrar en giftu konurnar, sem eignast börn og þess háttar. Matthildur prófastsdóttir vissi varla hvað- an á sig stóð veðrið og starði orðlaus á dótturdóttur sína. Hún veitti því eftirtekt, að það var kominn einhver annarlegur og óheillavænlegur glampi í augu hennar, rauðbláu vangarósirnar höfðu bliknað og upplitast, brjóst hennar voru fullþroska konubrjóst, mjaðmirnar fyrirferðarmiklar og fullkomlega undir það búnar, að gegna sínu hlutverki og fæturnir — guð sé oss næstur — það voru fætur norðmannsins, sem barnið stóð á. En að hún skyldi ekki hafa veitt því eftirtekt fyrr, livað telpan var lík honum í fótaburði. Hið traustlega vaxtarlag Stóruhlíðarfólks- ins hafði staðið á svikulli undirstöðu — hin- um spengilegu dansfótum Amandusar Mó- ^erg, og það voru þeir fætur, sem höfðu ðorið hana hingað þessi óheillaspor, og það var ástríða hans, sem brann henni í blóði og hafði breytt lit þess og eðli. í örvæntingu sinni, gerði hún enn tilraun í þá átt, að koma vitinu fyrir stúlkuna: — Fyrir alla muni, láttu mig aldrei oft- ar heyra, að þú talir svona, og gerðu það fyrir mig að fara aftur til þess fólks, sem hefur reynzt þér vel. Seinna munt þú skilja, hvers virði það hefur verið þér, að hafa átt þess kost, að vera með góðu fólki, þau árin, sem þér er hættast við að lenda á glap- stigu. Telpan aðeins hristi höfuðið með þrjózkusvip. Svo sagði hún: — Mér er sama hvað þú segir, amma mín. Til baka fer eg ekki aftur. Eg læt ekki grafa mig lifandi. — Guð fyrirgefi þér hvernig þú talar, barn, sagði amman skjálfrödduð. — Það er hér, sem þú verðui grafin lifandi — grafin lifandi, eins og eg hef verið öll þessi ár hérna. Hún sneri sér hálfvegis undan, svo að telpan sæi ekki að móða féll henni á augu. Henni skildist nú fullkomlega, að sigur Móranna yfir Stóruhlíðarættinni var óvé- fengjanlegur; draumurinn um uppreisn hennar mundi aldrei rætast, og kynfesta maka hennar yrði ekki brotin á bak aftur. Söðulbakaða ættarnefið á andliti dóttur- dótturinnar var ekki annað en sárgrætilegt háðsmerki á eftir þeirn ófarnaði, sem hún sjálf hafði leitt yfir ætt sína. Jafnhliða því, sem þetta var að renna upp fyrir henni, heyrði hún rödd Matthildar yngri: — Fyrst þér er það svona óskaplega á móti skapi, að eg komi hingað heim til þín, amma mín, þá get eg svo sem gert það fyrir þig að fara eitthvað burt héðan. Hún þagnaði andartak, en svo bætti hún við með beiskjufullum þótta: — En eg ætla þó að taka það fram í eitt skipti fyrir öll, að eg ætla mér ekki að vera hjá góðu fólki.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.