Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Page 38

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1954, Page 38
114 hirðina. Maurepas varð því einnig að víkja honum úr embætti fjármálaráðherra. Það var þá hætt við allar framfarir, end- urbætur og kjarabætur alþýðunnar í Frakk- landi. Allt var látið sitja í sama farinu. Oánægja almennings óx með ári hverju og var nú skammt að bíða byltingarinnar. Týndu sporarnir urðu orsök þess, að hinn duglegi og réttláti Machautt fékk ekki skip- unarbréfið um að verða æðsti ráðgjafi kon- ungs. í hans stað kom hinn makráði og að- gerðalausi Maurepas til æðstu valda. En honum má beinlínis kenna um það, að byltingin mikla skall á, og Lúðvík XVI., Marie Antoinette og þúsundir karla og kvenna 'voru af lífi tekin. Hinar mörgu af- tökur fóru fram til þess að ganga milli bols og höfuðs á einveldinu í Frakklandi. Bylt- ing þessi hafði áhrif í allri Evrópu. Þjóðim- ar heimtuðu meira frelsi, bætt kjör og af- nám einveldisins, hver í sínu landi. Litlu munaði að Lúðvík XVI. og hinir óduglegu ráðgjafar hans héldu lífi og bylt- ingunni yrði aflýst. Þegar konungurinn og stjórnin sáu að syrti í álinn, var haldin sam- koma mikil. Hafði konungur og ráðgjafar hans boðað aðalsmenn, klerka og borgara á „þjóðfund“ þennan. Stjórnarandstæðing- ar, eða krefjendur endurbóta og framfara, er voru á fundi þessum, létu algerlega stjórnast af hinum ágæta og áhrifaríka mælskumanni Mirabeau. Var hann skuld- um vafinn, og samkvæmt þeirra tíma sið, reiðubúinn að þiggja fjárhagslega hjálp stjórnarinnar gegn því, að gera henni greiða. Þvílík „viðskipti" áttu fram að fara með hinni mestu hæversku af hálfu beggja aðila. Einn af stjórnarmeðlimunum, flotayfir- umsjónarmaður, Malouet, liafði leitað hóf- anna hjá Mirabeau, og skilið á honum, að hann væri til með að semja við stjórnina. Sörndu þeir um það, að Mirabeau, utan- ríkisráðherrann Montmarin og Necker, sem aftur var orðin fjármálaráðherra, N. Kv. komu saman og ræddu málið. Hér var um að ræða hve mikla fjárupphæð Mirabeau gerði sig ánægðan með til þess að hann hætti að æsa lýðinn og aflétti byltingarhætt- unni. Malouet ætlaði að mæta á fundinum. Þegar utanríkisráðherrann var að því kom- inn að fara á þriggja manna fundinn, mundi hann allt í einu eftir að ósamkomu- lag hafði eitt sinn verið milli hans og' Mirabeaus. Hann áleit heppilegast að Necker semdi einn við Mirabeau. Necker hafði umráð yfir fjárhirzlunni. Malouet hætti einnig við að fara á fundinn. Hann hafði einungis verið milligöngumaður. Aleit liann að ráðherrunum þætti honum ofaukið. Það voru því eingöngu hinn skapbráði aðalsmaður Mirabeau og hinn þurrlegi fjármálamaður Necker, sem liittust. Necker var ekki háttvís né hirðmannlegur í fram- komu. Hann spurði klaufalega: „Hve mikið viljið þér fá?“ Mirabeau reiddist og sneri baki við Necker og fór út úr fundarherberginu. Eftir þennan misheppnaða fund magnað- ist Mirabeau um allan helming gegn kon- ungi og stjórn Frakklands. Hin blóðuga bylting skall á. Og það var því að kenna, að tveir liirðmenn liöfðu látið undir höfuð leggjast að tilkynna hvor öðrum, að þeir mundu ekki fara á fund Mirabeaus, senr var leiðtogi mótspyrnuhreyfingarinnar. Svo kom Napoleon til sögunnar og gerði Frakkland að keisaradæmi. Napoleon var nrikill lierforingi og duglegur ríkisstjóri eða keisari, en í aðra röndina stríðsóður lrarð- stjóri. Er hann að lokum beið ósigur við Waterloo 1815, var gleði manna í Evrópu takmarkalaus. Að líkindum hetir þessi gleði ekki verið á rökum reist. Ef Napoleon hefði unnið orrustuna við Waterloo, mundu báðir aðil- ar, vegna mikils mannfalls og þreytu hafa samið frið, er samkvæmt þáverandi stjórn- farslegum kringumstæðum gat rutt braiit „OFT VELTIR LÍTIL ÞÚFA STÓRU HLASSI“

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.