Trú - 01.10.1904, Side 2

Trú - 01.10.1904, Side 2
58 T R Ú . Draumur. (Niðurl.). Svo eru ennfremur allar ykkar óafvitanlegu syndir, sem þið verðið að standa reikningsskap fyrir, en hver sá, sem af hjarta viðurkennir sínar syndir, og biður í einlægni fyrirgefn- ingar á þeim, sá er minn vinur, sem eg lauga og hreinsa frá öllti ranglæti. Mér fannst eins og eg ætla að örmagnast, áf þessari sýn, en orð hans voru svo mild og blíð, að eg dirfð- ist að líta upp. Mér þótti hann þá líta til mín og segja: „Þú hefir nú fengið að líta alla þessa fyrirburði og sjónir í því skyni, að þú átt að opinbera það alt saman og engu leyna. Ennfremur skaltu líta upp og sjá sýn“. Eg leit upp, og sá himininn settan með nokkrum sólum, sem alt í einu urðu að svörtum kringlum, og segir hann þá: „Þetta eru sólir þeirra, sem formyrkvast í dauðanum. Nú er Islands þjóð að falla, og ekki helmingur, sem á mig trúir, enda þó að þjónar mínir vaki yfir henni dag og nótt. En vegna þess, að foreldrar þínir og börn þín biðja fyrir þér og þínum, hefur þú fengið að sjá þetta, til að opinbera það, og skal eg nú ennfremur sýna þér ættstofn þinn. „Líttu upp!“ Eg þóttist þá líta upp, og sjá hinsvegar laugarinnar dýrðleg- an sal opinn, og mikinn skara af englum. Gekk þá fram faðir minn og móðir, og sögðu: „Nú þekkir þú okkur eklci". „Eg þekki málróminn", þóttist eg segja, og þekti eg þar marga mína frændur af málrómnum, en ekki öðru. „Mikið má frels- ari vor líða, vegna þess að ættingjar vorir, ásamt þjóðinni, ekki vilja á hann trúa", segja foreldrar mínir. Þjóðin slær mörgu á frest, sem hún ekki má; meðal annars þóttist eg þar þekkja á málrómnum Rósinkar sál. frænda minn, sem sagði: „Ó, hvað eg er nú sæll, að vera í þessum unaði, því engum þeirra, sem á jörðu búa, getur látið sér slíkt f hug koma, því hér er gleði yfir öllu, nenia syndinni". í því bili hófst söngur, svo hann mátti ekki meira mæla. En sá hinn dýrðlegi maður, sem eg hélt vera frelsara minn Jesúm Krist, var að lauga margt af því fólki, sem á undan mér var komið upp úr lauginni, sem eg hafði áður séð. Þótti mér hann segja: „Ekki getur þú laugast nú, því syndaæfi þin er ekki á enda. En vertu glöð, og opinberaðu þetta allt bráðum

x

Trú

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Trú
https://timarit.is/publication/514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.