Stjarnan - 01.01.1898, Qupperneq 44
—42—
hvort sem vill ofanjarðar, eður grafln í jörð að
meira eður minna leyti, að eins að grundvöllurinn
sé harður og þurr, og að botn og veggir sé lopthelt.
Slík byrgi skyldu ávalt vera dýpri en hvað þau
eru breið, og séu þau ’mjög stór þfi skal þeim deilt
í fleiri hólf, og þá hvert eitt hólf fyllt í senn.
Byrgi, sem er ]5 fet á breidd, 15 fetá lengd og
23 fet á dýpt, á að rúrna sem næst 100 tonn af fóðri,
lieyi eða öðru (2,00,000 pund). Ef það er bygt
sérstætt, ofanjarðar, utanhúss, þáætti að vera undir
því sementaður grjótgrunnur. Það skyidi helzt
vera á þeim stað þar sem er auðvelt og fljótlegt að
gefa það gripum. —Gott að það sé ekki víðara ofan
en neðan—Sé það byggt úr tímbri (sérstætt) þá
þarf grindin öll að vera vel sterk, til þess að það
þoli pressuna innan frá, sem er álitin að vera sem
svarar 55 pundum á hvert ferh.fet í veggjum þess,
miðað við þá stærð sem átt er við hér að framan.
Undirlögin ættu að vera úr sverum trjám {t. d.
6x8 þuml.) og efri hringurinn (the plates) ætti að
vera nálægt því eins efnismikill, ogeinkar áríðandi
að hornin séu vel læst (bundin) eða nelgd saman,
svo að þau gefl sig ekki undan þyngdinni. Staf-
írnir ættu að vera að gildleika eftir hæð og breidd
hússins. Fyrir 23. feta hæð og 15 feta br. ættu
stafirnir að vera 2x10, með 22 þuml. millibili.
Innan á staflna skal klætt með tvöföldum borðvið
með tjörupappa á milli, þannig, að samskeytin á
ytri og innri klæðningunni staudist livergi á.