Ungi hermaðurinn - 01.07.1920, Blaðsíða 3

Ungi hermaðurinn - 01.07.1920, Blaðsíða 3
Úngi hermaðurlnn 51 Guði og Guð með honum; gott guðsbam getur því eigi þannig réttlætt yfirsjónir sínar með því að afsaka þær fyrir sjálfum sér. Og svo kom þá stundin, eftir 20 ára langa útlegð. Nú varð hann að bæta fyrir hina gömlu yfirsjón, hvað sem það kynni að kosta. Og Jakob bjóst til ferðar og fór til Kanaanslands. Margar endurminningar vökn- uðu í huga Jakobs, þegar hann nálgaðist Kanaansland, en skýr- ust hefir sjálfsagt endurminning- in um reiði Esaús bróður hans verið — og því reyndi hann að blíðka hann með þvi að færa honum gjafir. En ekki verða all- ar yfirsjónir afplánaðar með jarð- neskum gjöfum. Keiði Esaús hafði enn eigi minkað; kom hann nú á móti Jakob með 400 manna. En nú valdi Jakob hina réttu leið — þá leið, sem vér ættum allir að ganga, í bœn til Guðs. — Hér stóð nú Jakob aleinn um nótt í strangri baráttu, en hlaut þá sig- ur; hvers vegna sigraði hann? Vegna þess, að hann siepti ekki Guði fyrri en hann hafði öðlast hans fullkomna friö og blessun —- og hann öðlaðist himneskan kraft. En nú var hann ekki leng- ur hinn veikbygði Jakob, heldur hinn sterki Israel, sem hafði séð Guð augliti til auglitis, og sála hans var frelsuð. Jálcob Harlyk. Komandör Booth-Mer er einn hinn liprasti og geðþekk- asti foringi, sem vér eigura í Iljálpræðishernum. Frederik de la Tour Tucker átti enska foreldra, og er fædd- ur árið 1853 í hinum fagra bæ Monghyr í Bengalhéraðinu á Ind- landi, þar sem faðir hans var dómari. Endurminningar fyrstu bernskuára hans eru buudnar við hina miklu indversku uppreist. Einn dag, snemma morguns, vöktu systurhans hann,og sögðu: »Flýttu þér á fætur, Freddy, flýttu þér! hinir innfæddu, óeirðarseggir eru komnir hér!« Til þess að vekja ekki tor- trygni hjá hinum innfæddu, var börnunum komið fyrir í vagni, sem var talbúinn að flytja þau um borð í skip nokkurt, er fara átti með þau á einhvern örugg- an stað, þar sem þau gæti verið þar til öll hætta væri um garð gengin. Þegar hann var á 13. árinu, var hann sendur í undirbúnings- skóla í hinum enska bæ Chelten- ham og 8 árum siðar tók hann próf i indverskri þjóðmenningar- fræði. Litlu síðar fór hann að verða tíður gestur á samkomum Moody’s í Agricultural Hall i Lundúnum, og snerist til aftur- hvarfs á einni af hinum fyrstu samkomum, sem hann var á. Eftir að hann kom heim til

x

Ungi hermaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.