Nýja Ísland - 01.01.1904, Page 5
NYJA ISLAND.
I. árg.
Reykjavik, Janúar 1904.
I. blað.
Til lesenda Nýja íslands.
Blaö þaö, sem hér kemur fyrir al-
mennings sjónir, er ekki stórt; og þótt
það sé nú orðin tízka, að amast við öll-
um nýjum blöðum, þá er þó engin ástæða
til að hafa horn í síðu þessa litla blaðs —
ekki einu sinni fyrir útgefendur blaðanna
— hvað þá aðra. Það verður svo ódýrt,
að engan munar um, en vonast þó til að
geta orðið þannig að efni og búningi, að
það verði mörgum kærkominn gestur.
Um efni blaðsins verður það eitt sagt
að svo stöddu, að í því mun verða bæði
alvara og gaman. í hverja átt hin al-
varlega hlið blaðsins stefnir mun sýna sig
á sínum tíma. Að því er gaman-hliðina
snertir mun vor góðkunni Plausor láta til
sin heyra, bæði í bundnu og óbundnu
máli.
Útkoma blaðsins fer að nokkru eftir
kringumstæðunum — að líkindum kemur
það út mánaðarlega þetta árið.
Á Nýársdag 1904.
'f’orv. forvarðsson.
Bréfkaflar
frá Tömasi Snorrasyni.
I.
Með enska skáldinu Hall Caine, sem
heimsótti oss í sumar, sigldi ungur ís-
lendingur, Tómas Snorrason, realstúdent,
og hefir hann dvalið hjá honum síðan og
unir vel hag sínum. Þeir sigldu með
Vestu seint í Septembermánuði, og hefir
Tómas skrifað oss um ferð sína og setj-
um vór hér nokkra kafla úr bréfi hans.
„Ferðin gekk okkur nokkuð seint,
því við höfðum mótvind alla leið, þó aldrei
svo, að kallað yrði vont veður. Mr. Hall
Caine keypti tvo hesta í Reykjavík áður
en hann fór og hafði hann þá með sér.
Alls voru nálægt 80 hestar á skipinu.
Þegar lagt var af stað frá Vestmannaeyj-
um, fór eg að líta eftir hvernig hestunum
liði, sérstaklega þeim tveimur, sem við
höfðum með okkur; þeir voru í neðri lest-
inni og var þar liestunum hnappað sam-
an í fjórar stíur; einni til hvorrar hliðar
í skipinu, þi'iðju yflr þvert skip að fram-
an og fjórðu að aftan; sú stían var stærst
en mjög diinm. í miðjum stíunum var
ferhyrnt svæði og heyinu þar troðið út að
girðingunum, er þannig voru notaðar sem
garði, nema í skut-stíunni, þar var borð-
um slegið fyrir framan og varð því að