Nýja Ísland - 01.01.1904, Side 9

Nýja Ísland - 01.01.1904, Side 9
s spurningar þangað, til þess að þeim yrði svarað í boðskapnum næsta ár, og Babeuf setti þá fram —í bréfl 31. marz 1787,tveim árum áundan stjórnarbyltingunni — hinar eft- irfarandi, einkennilegu spurningar : „Ilvern- ig mundi—með núverandi þekkingu á nátt- úru og visindum — þeirrar þjóðar ástand líta út, sem væri þannig háttað, að þar ríkti fullkominn jöfnuður milli allra manna og að þeir bæði ættu jörðina sameiginlega og væru saman um ailar iðnaðargreinar". Yæri þanníg háttað þjóðfélag heimilt gagn- vart náttúrulögmáiinu? Gæti þess háttar þjóðfélag staðist, og væru nokkur ráð til fullkomlega jafnrar skiftingar?" Alþýðu-styrktarsjóðurinn. i. Úthlutunarnefndin í Reykjavík o. fl. Það eru víst margir um þann litla skerf, sem úthluta á áriega úr alþýðu-styrktar- sjóðnum, og eftir því, hvernig útbýtt var siðastl. haust hér í bæ, þá eru víst margir nauðuglega staddir, þar eð nefndin gekk fram hjá ekkju einni, er sótti, sem virð- ist þó sannarlega þurfa þessa styrks með. Og til þess að sýna, að þetta er ekki gripið úr lausu lofti, skal hér stuttlega minst á kringumstæður hennar. Þessi kona, sem nú er ekkja á sjö- tugsaldri, kom hingað til Reykjavíkur 16 ára gömul og vann hór í bæ í vist til þrítugsaldurs. Þetta var á þeim tíma, þegar tizka var að láta vinnukonurnar ganga á eyrina og láta þær vinna að út- og uppskipun, bera þungar byrðar, oft á höfðinu, o. s. frv. Þessi kona heflr verið mesta vilja-manneskja, ósérhlifln, en likc lega heldur kraftalítil, því hún er fremur lítil og grannvaxin; enda kemur þetta henni í koll nú, því nú háif-dregur hún á eftir sér annan fótinn og höfuðtaugarnar eru bilaðar og kvalirnar iðulega svo miklar, að hljóðin heyrast á nóttunm til hennar í her- bergin -í kring í húsinu. Um þrítugt gift- ist hún og bjó í hjónabandi í 14 ár og eígnaðist sjö börn, sem hún hefir mist öll á ýmsum aldri, en síðast misti hún dótt- ur sina 22 ára. Nú er hún einstæðingur og á eoga ættingja, er hún getur flúið til í eilinni. Þess þarf ekki að geta, að hún er eignalaus — á að eins bólið sitt. Þó hún byggi heldur vel með manni sínum — því þau voru bæði dugnaðarmanneskjur —, þá er það alt löngu búið, því langvinnar legur hennar sjálfrar og barna hennar, út- fararkostnaður manns hennar og barna (hún misti mann sinn og 3 börn á einu ári) og svo það, sem hún heflr þurft til að lifa af, heflr fyrir löngu farið ir.eð altsem hún átti. Ef úthlutunarnefndin hefir nú gert rótt síðastl. haust, með því að taka aðra fram yflr þessa konu, þá er augljóst að einhver á bágt hór í bæ. En þetta eru kjörin, sem aimúginn má búast við í ell- inni hér á landi. Þessu getur sjómaður- inn búist við, þegar hann er búinn að hrekjast fiam og aftur um hafið árum saman, frosin og kaldur, oft talið eftir hon- um kaupið hans; fleygt í hann horaðasta ketinu, sem hægt er að fá að haustinu — illa söltuðu, — otan á brauðið sitt fær hann versta margarínið sem ilytst, o. fl.

x

Nýja Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja Ísland
https://timarit.is/publication/533

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.