Nýja Ísland - 01.01.1904, Síða 11
i
ver á myndinni, vil eg biðja yður gera
svo vel, að færa skúflnn til á hinum
myndunum og láta hann hanga niður aft-
an við eyrað vinstra megin; bezt væri að
hann breiddist ofurlítið út á öxlina og að
það sæist ljóslega, að í honum er gott og
fínt silki. —- Sömuleiðis vil eg biðja yður
að breyta til um Saumavélina, sem er á
borðinu fyrir framan mig, og í staðinn
fyrir þessa úreltu keðjustingsmaskínu láta
það vera „Saxoníu“ eða einhverja aðra
nýmóðins vél. Ef þér haflð ekki Saxoníu
við hendina, munu piltarnir í Fischersbúð
góðfúslega leyfa yður að líta á hana sem
allra snöggvast, eða sem bezt væri, hjálpa
yður um prentaða mynd af henni.
Svo bið eg yður að senda mér mynd-
irnar sem allra fyrst, og vil eg helst að
9 af þeim séu stofumyndir, eða „skiliriu-
myndir, eins og prófmyndin, en með breyt-
ingum þeim, sem eg hef óskað að fá. Þá
eru þrjár eftir, og vil eg að eg só með
nýa skautið á einni, í fallegum bláum
mötli með hvítum loðkanti í kring; og á
annari óska eg að vera giímuklædd, því
eg hef hugsað mér að verða á þrettánda-
dansinum. og þætti mér þá gaman að
geta tekið upp úr vasa mínum mynd af
mér og sýnt kunningjunum í kring um
mig. Þér getið sjálfur ráðið hvort þór
látið mig vera f blómsturjómfrúr búningi
eða bóndastúlku, því það er líklega ekki
hægt fyrir yður, þegar tíminn er orðinn
naumur, að sýna mig í báðum þessum
búningum á sömu myndinni. Loks er
eftir tólfta myndin, og óska eg að það
verði landlagsmynd af mér 12x18 þuml.
að stærð og mjög vönduð. Ef pening-
arnir eru ekki nógir, sem þér haflð fengið,
skal eg senda yður meira. — Fyrir alla
muni hafið þér svo myndirnar allar skugga-
lausar og mæta vel póleraðar.
(Svar frá myndasmiðnum kemur í næsta blaði).
Báruvísur.
Nú blöðin hafa’ í bænum hjá oss býsna
mörgu lýst,
en „Báruna" í Ijósið ei þau draga,
og þó er hún hór þarfast félag, það er
satt og víst,
og það mun verða skrifuð hennar saga,
því iðja hennar er að draga allan flsk úr sjó
og ala’ og flta reiðarana’, er seðjast aldrei þó;
þeir haida það sé hásetunum hæfilegt og nóg,
ef hryggina og tálkn þeir fá að naga.
Þeir einir mundu allan draga auð í vasa sinn
ef ekki þæfði „Báran“ neitt í móinn. —
En hvernig færi’ ef hittist enginn hásetinn,
sem húsbóndanum fylgja vildi’ á sjóinn?
Þá stæðu skipin uppi öll og enginn kæmi’
á flot
en útgerðin og kaupmennirnir iiðu ,bankarot‘
og Englendingar einir hefðu’ af útgerðinni
not,
því opinn stæði Trawlurum hver flóinn.
í bænum yrði’ ei björgulegt, ég benda á
það vil,
ef „Báran“ ekki færði’ oss neina veiði.
Það dygði skamt þótt drengirnir á daginn
reyndu til
að dorga fyrir marhnúta og seiði.
Nei, hollast er að hásetarnir hafl skerflnn
sinn,