Nýja Ísland - 01.01.1904, Síða 12
8
þá hugsa þeir um færið sift, ef vaknar
þorskurinn
og hver af öðrum hlaðinn kæmi haffarinn
á höfnina í þægu sumarleiði.
Plausor.
Þrettándavísur.
Um áramót kemst alt á flug,
því æskan vængi fær,
og yngir þann um áratug,
sem ellin móti hlær.
Þá sprikla allir spjátrungar
og spraða sig á kjól,
taka sér staf í hönd, kaupa sér vindil, kveikja í
honum og ganga svo í nágrannahúsin, banka
ofurfínt á hurðina og segja: „Gúdag og gleði-
legt njár, Takk fyrir gamlárið. Hér erum vér
þá komnir
á stefnumót við stúlkurnar,
sem störðu’ á oss um jól“.
Ja, svona’ er tíðum æskan ör
og oft þá lægst er sól
hún tengir saman pör og pör
í pukri um sérhver jól;
þau opinbera’ um áramót
og eftir tísku lands
koma svo piltarnir heim til unnustu sinnar á
þrettándanum og segja; „Sæl og blessuð, dúf-
an mín! Þakka þér nú hjartanlega fyrir jólin
og njárið og alla skemtuna. Það eru þau ynd.
islegustu jól, sem ég hef lifað. Nú er óg kom-
inn liingað til
að kalla þig, mín kæra snót,
•í kvöld á grímudans.
Sko! Föt hér hef eg fengið ný
og falleg handa þér;
þau eru reyndar ekki hlý,
en á því lítið ber.
Ó, blessuð farðu’ í búninginn;
sem blómsturgyðja fín
verðurðu elskau mín, þegar þú ert komin í hann,
kjólinn þann arna, alsettan liljum og vorskrúði;
og svo er hérna gríma fyrir andlitið, ég sá elcki
aðra betri
í gluggunum, er gekk ég inn
í Grímu magazín.
Og ef þér líkar ekki sá,
sem eg hef valið þér,
ég legg hér annan, líttu á,
hann liti marga ber.
Ó, blessuð reyndu búninginn;
sem bóndastúlka fín,
já, og langtum fallegri en stúlkurnar í sveitinni
verður þú, þegar þú ert komin í þossi föt. Hérna
er svo önnur gríma með langt ncf, sem hæfir
betur þessum búningi. Ég gat ekki fundið aðra
kyndugri
á ganginum, er gekk ég inn
í Grímu magazín.
En væna, góða vertu stilt;
þú veizt ég elska þig,
og ef þú séið svo einhvern pilt,
þá áttu’ að hugsa’ um mig,
og vilji hann þér vera nær,
þá víktu honum frá
og segðu: „Kondu’ ekki nærri mér, bestið þitt.
Ég er trúlofuð, opinbcraði um nýárið; kærasti
minn er víst hérna á næstu grösum
og verður máske alveg ær,
ef öðrum sést ég hjá.
Plausor.
„Nýja ísland“ kostar 10 aura tölublaðið.
Kemur út mánaðarlega.
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
þORV. ÞORVARÐSSON, prentari
Prentsmiðja Þobv. Þokvauussonab.