Nýja Ísland - 01.10.1904, Side 3
NYJA ISLAND.
I. árg.
Reykjavík, Október 1904.
5. blað.
Berg'ljótar vísur.
Bara hefði hún Bergljót
orðið bóksala frú,
í borginni sú lærðasta
þá væri’ hún sjálfsagt nú;
hún allar þekkir orðabækur,
ekki vantar það,
og engin hana jafnast við
að „redigera" blað.
Hún skilur alt og skynjar glögt,
sem skeður hér í Vík
en skoðar grant í kaffigromsi
landsins pólitík,
og sé hún spurð uni sérmál vor,
í svörum er hún greið,
það sáurn vér á fundinum
i vikunni, sem leið.
Hún sagðist stara’ á stjórnarbót,
sem stefndi ekki’ á neitt,
því stjórnarbót vér gláptum á,
sem fengist aldrei veitt,
og hver í sínu horni
að oss hlægi nú um sinn
hann Hannes, Deuntzer, Alberti
og sjálfur kóngurinn.
Hún kvað sér lítast Landvörn á
yom landsins gaddavír,
á leiðinni oss vantaði’ ekki
pólitískar brýr,
en undirstöður allar rifi
árstraumarnir brott
því efnið hvorki Jón né Knútur
findi nógu gott.
Og það sem blöðin bendi á
til bölvunar sé flest,
og bráðum muni fara svo
þau verði hór að pest,
að lesa þar um landsmál vor
sé leiðindi og kvöl,
sér liki bara Kvennablaðið,
Templar, Muninn, Dvöl.
Já, það er líka svei mér satt,
er segir hún um slíkt
og seint hjá oss við stórveldi
þeim blöðum getum líkt,
sem urra’ og gelta eins og hundar,
ala flokka rýg,
og oftast þá lijá lesendunum
vinna fyrir gíg.
Ef fjóðviljinn er það hjá og oss,
að þrasa’ um stjórnarfar,
um þorsk og ýsu lengur vér
ei ræða skulum par;