Sumarblaðið - 17.06.1916, Side 4

Sumarblaðið - 17.06.1916, Side 4
10 SUMARBLAÐIÐ vatui er venjulegast farin þótt hún sé nokkuð lengri. Upp á Ármannsfell má fara á 2 tím- um. Þar er ljómandi fagurt útsýni yflr alla Þingvallasveitina, sömuleiðist sést þaðan yfir Langjökul og Ok. Síðast en ekki síst eru Botnssúlur, sem eru 3531 fet. Talið er að þaðan sé þriðja bezta útsýni á landinu. Þang- að er auðvelt að komast á þrem tím- um frá Þingvöllum. Því til sönnunar má geta þess, að í fyrrasumar, í ágúst, fóru þangað upp í einum hóp 14 manns þar af 6 stúlkur, og var flest fólkið al- gerlega óvant fjallgöngum. Ferðin tók sex tima báðar ieiðir. Jeg vil ráða öllum, sem til Þingvalla fara í sumar að láta það ekki undir höfuð leggjast að ganga upp á Súlur, því enginn, sem ekki hefir verið þar uppi getur gert sér nokkra hugmynd um, hvað útsýnið er fagurt. Þar uppi blasir við, eins og skáldið segir: ------------brattir ásar. Björt djúp, hvassir gnúpar. Heiðarvötn og hæðir. Hafið gulli stafað. Eyjar iturháar. Árdrög sólu gáruð. Eldhraun, óbygð kalda, Yzt í bláu mistri. H. f. B. Göngulag. Það er ilt til þess að vita, að fjöldi manna skuli vanskapa vöxt sinn með fáránlegu göngulagi og ljótum lima- burði. Mér finst að engum manni ætti að vera ofætlun að ganga eins og maður, en dragast ekki áfram í átján hlykkj- um eins og skríðandi ormur. Það er nú svo langt síðan að menn- irnir gengu á fjórum fótum, að það er all-óviðfeldið að sjá menn haga sér eins og þeir ætli að kasta sér á »fram- íæturna«. Það er ekki óalgengt að sjá slíkt í sjálfri höfuðborginni. Göngulag manna er mjög á ýrnsa vegu. Sumir skjóta annari öxlinni upp en halla hinni. Sumir liallast áfram við livert fótspor, en aðrir iiöggva fram á annan fótinn, eins og þeir séu haltir, þótt þeir hafi báða fætur jafn heila. Sumir draga fæturna á eftir sér, hafa báðar heudur í vösum og skjóta herð- unum upp undir hnakka. Sumir ganga hoknir með bogin kné, eins og þeir séu að leka niður. Algengastur er sá óvani, að menn gangi álútir. Það er algengt að ungir menn temja sér göngulag feðra sinna, sem oft er ekki sem fallegast. Það sýnist svo, að þeir geti sjálfir séð óvanann og sneitt hjá honum, þegar þeir eru komnir til vits og ára. En því miður er því ekki ætíð þann veg farið. Við óvananum tekur maður af manni, og þannig getur sami afkáralegi limaburðurinn huldist í gegnum heilar ættir! Menn eiga að ganga beinir og bera höfuðið hátt. Gangurinn á að vera léttur og mjúkur. Það á að vera vilji og þróttur í hverri hreyfingu. Menn eiga ekki að venja sig á að hafabáðar hendur í vösum í senn. Ilendurnar ættu helzt allt af að vera lausar. Brjóst- ið á að vera liátt. Fæturnir eiga að koma því nær beint fram, en ekki sitt í hvora áttina. Fallegt göngulag fegrar vöxt manna að sama skapi og ljótt göngulag aflagar. a—b

x

Sumarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumarblaðið
https://timarit.is/publication/535

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.